Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 143
141
Skipaskaga. Á árinu komst upp um kýnferðisbrot meðal barna i
kauptúninu. Lét lögreglustjóri skoða 10 börn af þessum sökum, eink-
um viðvíkjandi smitun. Barnaverndarnefnd kom börnum þessum
fyrir á sveitaheimilum.
22. Sótthreinsanir samkvæmt lögum.
Tafla XX.
Samkvæmt sótthreinsunarreikningum, sem borizt hafa landlæknis-
skrifstofunni, hefur sótthreinsun heimila farið 213 sinnum fram á
árinu á öllu landinu, og er tíðasta tilefnið berklaveiki (60%) þá
skarlatssótt (25%), en önnur tilefni fágæt.
23. Framfarir til almenningsþrifa.
Læknar láta þessa getið:
Bíldudals. Miklar breytingar til batnaðar hafa orðið hér á Bíldudal,
síðan Gísli Jónsson lceypti Bíldudalseignina svonefndu. A síðastliðn-
uin 2 árum hefur hann byggt hér ágæta hafskipabryggju, vatnsleiðslu,
sem mikill hluti þorpsisn fær nú vatn frá, 2 verksmiðjur, aðra til
vinnslu á rækju og til fiskniðursuðu, og fiskimjölsverksmiðju, sem
vinnur úr öllum fiskúrgangi, steinbít, síld og karfa; í sambandi við
hana er líka lifrarbræðsla. Auk þess hefur hann flutt inn byggingar-
vörur, kol, salt og olíur, en þessar vörur voru áður ekki fáanlegar í
þorpinu. Framkvæmdir þessar hafa aukið hér mjög atvinnu. auk
þess sem skapazt hefur hér grundvöllur undir aukna útgerð, sem áður
mátti teljast lítt rekanleg héðan. Þá var frystihúsið hér stækkað til
muna síðastliðið sumar, stækkað geymslurúm og byggt stórt hús til
íiskflökunar. í því er auk þess kassaverkstæði, skrifstofa og ágæt
kaffistofa fyrir verkafólkið. í ráði er að stækka það enn meir í sumar
°g bæta við nýrri vélasamstæðu. Fyrstihúsið keyjiti fisk á liðnu ári
íyrir nálægt % milljón krónur og veitir stöðugt mjög mikla atvinnu.
Flateyrav. Túnrækt hefur eitthvað aukizt í kringum kauptúnið, en
þó eru kýr ekki nema 25 hér í kauptúninu, og er það allt of lítið, þó að
eitthvað sé flutt að af mjólk hér innan af ströndinni.
Blönduós. Framfarir til almenningsþarfa hafa litlar orðið á árinu.
Þó var byrjað á stækkun Blönduósbryggju, en það er allmikið verk,
seni mun kosta um 60 þúsund krónur.
Sauðárkróks. Til framfara til almenningsþarfa má telja hafnar-
gerðina á Sauðárkróki, sem lokið var við á þessu ári. Hún er að vísu
dýr, og má búast við, að erfitt verði fyrir héraðið að standa undir
kostnaðinum fyrst um sinn, en vonandi verður hún til þess að ýta
undir auknar framkvæmdir á öðru sviði, svo að atvinna geti aukizt.
þr þegar komin nokkur hreyfing í þá átt að koma upp hraðfrystihúsi.
Óiafsfj. Óvenju mikið um ýmsar framkvæmdir. Steypt var síldar-
l'lan, um 1700 fennetrar að stærð. Stóðu að því verki Söltunarfélagið,
Ólafsfjarðarhreppur og KEA. Hefur aðstaða til síldarsöltunar stórum
ðatnað við það. Mun það hafa kostað um 30 þúsundir. Bryggjan var
breikkuð á parti og stevpt nýtt ker utan um gamalt. Kostnaður um