Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 133
131
Þingeyrar. Sltólaskoðanir fara reglulega frar.i ár hvert í byrjun
skólaársins. Er enginn vafi á, að þær gera mikið gagn. AUs staðar eru
í héraðinu sérstök skólahus, og má telja þau viðunanleg eftir efnum
og ástæðum.
Hóls. Ekki hefur enn verið tekið til að stækka barnaskólann, en
unnið hefur verið að fjársöfnun í því skyni.
ísafí. Skólar og skólastaðir hinir sömu og áður og svipaður nem-
endafjöldi í þeim, nema hvað gagnfræðaskóiinn hefur fengið nýtt og
vandað hús, sem nú er að mestu fullgert.
Ögur. Skólar eru 5 í héraðinu og erfiðar og dýrar ferðir á milli þeirra.
Er því örðugt um eftirlit. Skólaskoðun fer þó fram 1—2svar á árinu.
1 3 skólunum eru aðeins 10—20 börn, og veröur reksturinn þar því
tiltölulega dýr og erfiður, en aðbúnaður allur og kennsla ófullkomin.
Hólmavíkur. Héraðslæknir kenndi heilbrigðisfræði í unglingaskóla
á Hólmavík.
Miðfj. Húsakynnum á skólastöðum, þar sem farskólakerfinu er fylgt,
er sums staðar mjög ábóta vant, en ómogulegt virðist vera að lagfæra
þetta, fyrr en skólastaðirnir eru orðnir fastir.
Blönduós. Skólaeftirlit hefur verið rækt í sambandi við skólaskoð-
anir. Þó hefur það komið fyrir, að kennt hefur verið á stöðum, sem
ég hef ekki skoðað, vegna þess að skólanefndirnar eru ekki alltaf
búnar að ákveða skólastaðina á haustin.
Sauðárkróks. Um skólastaði er það að segja, að þó að þeir séu taldir
viðunandi, er þeim víðast hvar mjög ábóta vant, og verður varla úr
því bætt, fyrr en byggðir eru skólar.
Ólafsfj. Engar breytingar hafa átt sér stað á skólahúsinu, sem er
allt of lítið. I Hringverskoti var reist nýtt skólahús í sumar, og er ætl-
unin, að með tímarium verði þar heimavistarskóli. Alls mun húsið
hafa kostað um 12000 krónur. Húsið er að utanmáli 11 m langt. Breidd
að sunnan 5,70 in, en norðurhlutinn er á 4,70 m parti 7,30 m breiður.
í húsinu eru þessar vistarverur: Anddyri 1,10 X 2,10 m. Forstofa
2 X 3,10 m með vatni og vask. Fatagevmsla er 1,20 X 2,20 m. Þar
innar af er vatnssalerni 0,82 X 1.20 m og steypibað 0,82 XEOb m.
Miðstöðvarherbergi 2,20 X 1.50 m ineð eldavél og miðstöðvarkatli.
Skólastofa 5 X 7 m. Kennaraherbergi 2 X 2,10 m. Lofthæð 2,80 m.
Rishæð 1 m. Gluggar 1,10 X 1,30 m.
Svarfdæla. Barnaskólahúsið í Hrísev enn ófullgert og liggur undir
skemmdum. Heimavistarskólahúsið á Arskógsströnd er enn ekki nema
kjallarinn, og er kennt í honum til bráðabirgða. í Árskógsskóla voru
lýsisgjafir. Unglingaskólinn á Dalvík hefur inni í barnaskólahúsinu
nieð 20 nemendur.
Akureyrar. Tannlæknir bæjarins var ráðinn til tannaðgerða á skóla-
hörnum, og hefur hann gert við tennur þeirra eftir því, sem honum
hefur unnizt tími til. Mjólkur- og lýsisgjafir hafa verið í barnaskólan-
nm i vetur, og hafa öll skólabörn átt kost á slíkum gjöfum. Af mjólk
cyddust 6200 lítrar og af lýsi 390 lítrar. Ljóslækninga nutu á árinu
225 skólabörn.
Höfðahverfis. Skólabörnin voru skoðuð tvívegis á skólaárinu, þegar
það byrjaði og áður en það endaði. Auk þess athugað, hvort óþrif