Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 84
82
fær í fyrsta sinn. Fjúrhagur mjög lélegur. Unnusti atvinnulaus.
Ibúð: 1 herbergi.
Sjúkdómur: Neurosis functionalis gravis.
Félag'slegar ástæður : Örbirgð og atvinnuleysi.
Sjúkrahús A kureyrar:
1. 30 ára, g. verkamanni á Akureyri. Komin 8—10 vikur á leið. 6
fæðingar á 9 árum. Börnin (9, 7, 6, 4, 3 og á 1. ári) á framfæri
foreldranna. Sár fátækt. Árstekjur 1000 kr, í mesta lagi. íbúð: 2
herbergi mjög lítil og dimm í gömlum kofa og gluggalaust eldhús.
Sjúkdóur: Tbc. pulmonum. Sequelae coxitidis tuberculosae
Exhaustio.
Félagslegar ástæður: Örbirgð og' ómegð.
Vönun fór jafnframt fram á 11 konurn (tbc. pulmonum 3, sclero-
keratitis tbc., debilitas 2, cystopyelitis, struma, morbus Basedoxvii,
idcus varicosum, pelvis contracta).
Að öðru leyti láta læknar þessa getið:
fívik. 4 börn fæddust vansköpuð (2 greind á skýrslum ljósmæðra).
þar af 2 með spina bifida. Var gerð á þeim báðum skurðaðgerð, á
öðru með árangri, en hitt dó á 3. degi. 3 mæður dóu, 2 þeirra á fæð-
ingardeild Landsspítalans. Önnur þeirra, 29 ára, fékk fæðingar-
krampa (eclampsia) á 8. mánuði meðgöngutímans. Var gerður á
henni keisaraskurður og náð andvana barni, en hún dó á 4. degi. Hin
konan hafði fyrirstæða fylgju. Var flutt langt að ofan úr sveit. A
henni var einnig gerður keisaraskurður og náð lifandi barni, en hún
dó eftir 5 daga. 3. konan var 33 ára fjölbyrja, hafði einnig fyrirstæða
fylgju. Hún fæddi í heimahúsum. Var gerð vending og náð andvana
barni. Konan dó skömmu síðar.
fíorgarfj. 1 kona hafði placenta prævia, og hafði blætt allmikið, er
ég kom. Tókst að kornast fyrir röndina á placenta og sprengja himnu.
Hætti þá blæðingin von bráðar, og gekk fæðingin vel. Enginn abortus
provocatus og ekki beðið um slikt. Flestar mæður gefa brjóst og
munu reyna að fara eftir Leiðbeiningum um meðferð ungbarna uni
mataræði.
Borgarnes. 2 fæðingar injög' erfiðar og óálitlegar: Primipara, ennis-
cða framhöfuðstaða. Allströng sótt. Konan uppgefin og' fósturhljóð
léleg. Reyndi töng, en tókst ekki. Höfuðið ekki vel fast og losnaði.
Gerði vendingu, og gekk þá allt vel. Multipara, eðlileg fæðing', en nijög
mikil blæðing' með fylgju á eftir. Lagaðist með alls konar meðalainn-
spýtingu. Fóstureyðingar engar. 1 fósturlát varð ég var við hjá heilsu-
lítilli konu, sem allt í einu fékk mikla blæðingu, og kom brátt ca. 6
vikna fóstur. Konunni lieilsaðist sæmilega eftir atvikum.
Stgkkishólms. í flestum tilfellum, er ég var við fæðingar, var ekk-
ert sérstakt að gera, en konur óskuðu að fá deyfingu í kollhríð.
Tvisvar var þó lögð á töng, sem gekk vel, og heilsaðist konu og barni
vel í bæði skiptin. 4. júní var mín vitjað til konu vegna blæðingar.
Hafði hún alið barn 25. f. m„ sem var ófullburða og vó aðeins 1300
gr. Það lifði í 14 daga og veslaðist svo upp. Konan tatdi sig hafa
orðið gravid í byrjun janúar og fundið fósturhreyfingar í júníbyrjun.
Þetta er margra barna móðir. Henni heilsaðist vel eftir þetta.