Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Síða 137
135
Eyratbakka. í keknisferðum mínuin ti 1 sjúklinga hef ég á árinu
ekið í bifreið rétt um 7000 km (6980). Við skólaeftirlit og berklapróf
1439 km. í viðtalstima að Selfossi 579 km. Farið ca. 138 km ríðandi,
í vélbátum og' trillum 110 km. Þetta er alls yfir 9000 km.
15. Slysavarnir.
Læknar láta þessa getið:
Bildudals. 2 deildir Slysavarnarfélags íslands starfa hér í héraðinu,
og er nokkur áhugi fyrir þeim málum, einkum innan kvénnadeildar-
innar.
Sauðárkróks. Slysavarnardeildir eru 2 á staðnum og vinna að fjár-
söfnun til slysavarna.
Höfðahverfis. Hér er slysavarnardeild, sem hefur fengið björgunar-
liringi og krókstjaka á bryggjur hér. Var þess brýn þörf, þar sem þær
eru mjög háar og börn stöðugt að flækjast á þeim. Einnig er í uiidir-
búningi að búa til sundlaug skámmt frá Grenivík, í svo nefndu Grenja-
gili. Eru þar volgar uppsprettur, og þaðan á að ná vatni í laugina.
Húsavíknr. Hér eru 2 deildir karla og kvenna úr Slysavarnarfélagi
Islands. Starfa þær á svipaðan hátt og aðrar deildir félagsins gera
annars staðar.
Oxarfj. Slysavarnir vantar.
Idstilfj. Útgerðarmaður gaf björgunarhring og krókstjaka á bryggj-
una nýju og gekk frá þessum munum á handhægum stað á henni.
Vestmannaeijja. Slysavarnardeildin Eykyndill úr Slysavarnarfélagi
íslands starfar hér að slysavarnarmálum í samvinnu við Björgúnar-
félag Vestmannaeyja.
16. Tannlækningar.
Læknar láta þessa getið:
Borgarfj. Margir gera sér nú orðið far um að halda tönnum sínum i
lengstu lög og koma með þær til viðgerðar, en hinir eru þó fleiri, sem
láta allt drasla, þangað til viðgerð er um seinan og eina úrræðið er
iannleysi eða gerfitennur.
Bíldndals. Illt er til jiess að vita, hvað við héraðslæknar erum al-
mennt ófróðir í tannlækningum. Það er léleg lækning að þurfa að rífa
tennur úr fólki, hvað lítið sem að þeim er, en um annað er venju-
lega ekki að ræða, því að fæstir hafa efni á eða ástæður til þess að
fara langar leiðir til þess að leita sér tannaðgerða.
Húsavíkur. Eitt af því, sem ég tel með mestu nauðsynjum, er að
tnnnlæknar kæmu í héruðin og dveldu um tíma á hverjum stað til
tannaðgerða.
17. Samkomuhús. Iíirkjur. Kirkjugarðar.
Læknar láta þessa getið:
Bíldudals. Góð kirkja er á Bíldudal og snotur og sæmilega hirtur
kirkjugarður. Önnur kirkja er í Selárdal, Ijót og léleg, köld og illa
hirt. 2 lítil samkomuhús eru í Iíetildalahreppi, en á Bíldudal er ekk-
ert samkomuhús nema dálítil stofa i prívathúsi hjá einsetukarli.