Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Side 22
20
Blönduós. Hefur enn ekki komið fyrir, svo að ráðstafanir þær, sem
gerðar hafa verið um smitbera, virðast ætla að koma að góðu gagni.
Eftir að ég tók gallblöðruna úr B. J.-syni, sem getið hefur verið um
í fyrri skýrslum, er aðeins 1 smitberi í héraðinu, sem sé frú M. S.-
dóttir, en hún er einangruð í húsi sínu á Skagaströnd með styrk hins
ojíinbera. Alla taugaveiki hér hefur mátt rekja til hennar, beinlínis
eða óbeinlínis, undanfarin ár eða áratugi.
Sauðárkróks. Taugaveiki engin, en taugaveikissmitberar teljast 2
ninir sömu og undanfarin ár.
Húsavíkur. Á þessu ári veiktist enginn af taugaveiki. Frá smitberan-
um í Flatey hefur enginn sýkzt, enda er hann mjög varfærinn og
gætir allrar varúðar í bezta lagi.
Vestmannaeyja. Telpa 12 ára gömul smitaðist af sóttberanum O. B.-
dóttur. Var í fóstri hjá konu, sem O. B. heimsækir oft. Frétti ég það
síðast, að hún hafði fært j)essari vinkonu sinni blóðmörskepp. Telpan
fékk bita af lioniim og veiktist eftir rúmlega V2 mánuð. Vinkonan,
sem át mest af blóðmörnum, hefur fengið taugaveiki áður og sakaði
því ekki. Með öllum ráðum reynt að brýna hreinlæti fyrir O. B. og'
sérstaklega að láta aldrei bita eða sopa af hendi rakna við aðkomu-
fólk. Hún er góðgerðarsöin, gamla konan, og brýtur bannið, áður en
lnin veit af.
Keftavíkur. Sami smitberi og undanfarin ár i Keflavík. Gengur að
útivinnu og hefur herbergi út af fyrir sig.
8. Iðrakvef (gastroenteritis acuta).
Töflur II, III og IV,8.
Sjúklingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl......... 2037 3138 2523 3200 1585 1790 1740 1635 1961 2990
Dánir ........ 4 5 1 8 1 ,, 2 ,, 4 3
Sjúklingar með flesta móti, sem verið hefur undanfarin ár. Þar sem
verulegir faraldrar hafa átt sér stað, er ýmist grunsamlegt eða
nokkurn veginn öruggt, að um blóðsótt hefur verið að ræða (einkum
á Austfjörðum og í grennd við Reykjavík).
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Stingur sér niður allt árið, eins og vant er.
Borgarjj. Enginn faraldur.
Borgarnes. Iðrasóttar naumast orðið vart.
Ólafsvíkur. Eitt og eitt tilfelli flesta mánuðina.
Reykhóla. Nokkur tilfelli í októbermánuði.
Flateyjar. í júlí gekk slæm gastroenteritis.
Bíldudals. Nokkur dreifð tilfelli.
Hóls. Nokkrir veiktust af iðrabólgu á haustmánuðum og síðustu
mánuðum ársins, einkum börn.
ísafj. Er hér alla mánuði ársins, nema júní og júlímánuði. 2 börn
dóu úr illkynjuðu iðralcvefi.
Ögur. Fá tiifelli um suinarið og væg.