Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Síða 100
98
8. Skipulagsskrá fyrir Sjúkrasjóðinn Minning (18. júli 1938, en ekki
birt fyrr).
Til læknaskipunar og heilbrigðisraála var eytt á árinu kr. 721046,48
(áætlað hafði verið kr. 660731,00) og til almennrar styrktarstarfsemi
kr. 1667091,28 (áætlað kr. 1618800,00) eða samtals kr. 2388137,76.
Á fjárlögum næsta árs voru sömu liðir áætlaðir kr. 860100,00 -j-
1707400,00 = 2567500,00.
2. Heilbrigðisstarfsmenn.
Tafla I.
Á læknaskipun urðu eftirfarandi breytingar:
Jóhannes Björnsson cand. med. & chir. settur 7. janúar héraðslæknir
í Miðfjarðarhéraði frá 1. sama mánaðar. Torfi Bjarnason, héraðs-
læknir í Miðfjarðarhéraði, skipaður 10. janúar héraðslæknir í Sauðár-
krókshéraði frá 1. sama mánaðar. Ragnar Ásgeirsson stud. med. &
ehir. seltur 21. febrúar héraðslæknir í Reykjarfjarðarhéraði frá 1.
marz. Óli P. Hjaltested cand. med. & cliir. ráðinn frá 1. apríl aðstoðar-
læknir við berklavarnarstöðina í Reykjavík. Daníel Daníelssyni, hér-
aðslækni í Hesteyrarhéraði, veitt 3. april lausn frá embætti frá 31.
maí. Björn Sigurðsson cand. med. & chir. skipaður 3. apríl héraðs-
tæknir í Miðfjarðarhéraði frá 15. sama mánaðar. Ólafur Páll Jónsson,
settur héraðslæknir í Bíldudalshéraði, skipaður 15. maí héraðslælcnir
í sama héraði. Ásbjörn Stefánsson cand. med. & chir. settur 31. mat
héraðslæknir í Hesteyrarhéraði frá 1. júní. Ólafur Thorarensen stud.
med. & chir. ráðinn 5. júní til að sitja á Raufarhöfn og g'egna þar
læknisstörfum um síldveiðitímann. Ólafur Geirsson cand. tned. & chir.
ráðinn frá 1. október aðstoðarlæknir berklayfirlæknis. Páll Sigurðs-
son, læknir í Reykjavík, ráðinn 1. október aðstoðarmaður á skrifstofu
héraðslæknisins í Reykjavík. Héraðslæknirinn í Hólmavíkurhéraði
settur 10. október til að gegna Reykjarfjarðarhéraði ásamt sínu hér-
aði. Bjarna Sigurðssyni, héraðslækni í Reykdælahéraði, veitt 3. nóv-
ember lausn frá embætti frá 15. sama mánaðar. Björgúlfur Ólafsson
læknir settur 13. nóv. héraðslæknir í Reykdæhihéraði frá 15. sama
mánaðar. Héraðslæknirinn í ísafjarðarhéraði settur 22. nóvember til
að gegna Hesteyrarhéraði frá 1. desember ásamt sínu eigin héraði.
Helgi Tómasson, yfirlæknir á Nýja-KIeppi, skipaður 12. desember
yfirlæknir við geðveikrahælið á Kleppi.
Að störfum á árinu settust: í Reykjavík Ólafur Geirsson, Óli P-
Hjaltested og Pétur Jakobsson. Á Akureyri Victor Gestsson. í Sigtún-
um við Ölfusá Brynjólfur Dagsson.
Almenn lækningaleyfi og sérfræðingaleyfi voru veitt samkv. lög-
um nr. 47 23. júní 1932 urn lækningaleyfi o. s. frv., sbr. reglugerð
20. febrúar 1936 um framhaldsnám kandídata í læknisfræði til að
geta öðlazt ótakmarkað lækningaleyfi og um sérmenntun lækna til að
geta öðlazt sérfræðingaleyfi.
1. A 1 m e n n t lækningaleyfi:
Bjarni Jónsson (25. jan.).
Kjartan Guðmundsson (25. jan.).