Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 32
30
Vestmannaeyja. 1 tilfelli (ekki skráð). Hafðist uppi á smitbera.
Eyrarbakka. 4 sjúklingar skráðir. Reyndust þeir allir Pirquetpósi-
tívir, og við röntgenskoðun sáust virkar berklabreytingar í 3 af þeim,
en ekkert í 1.
20. Ristill (herpes zoster).
Töflur II, III og IV, 20.
S júklingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1931 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl........ 7 3 14 19 20 72 47 64 62 63
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Ristil hafa nokkrir sjúklingar haft (enginn skráður á
mánaðarskrár), en ekkert var sögulegt við þá, neina 1 gamla konu. Eg
var sóttur til hennar Ianga leið. Var hún með hita og þraut í síðu, og
öll var síðan næstum því eitt sár, því að hún hafði brennt sig með
steinolíu, þegar hún fékk verkinn í síðuna. Konan kom til, en var
lengi að ná sér.
Dala. Gerir á hverju ári vart við sig.
Sauðárkróks. 4—5 tilfelli mun ég hafa séð á árinu, en þau hafa
ekki verið tekin á mánaðarskrár.
Reyðarfi. Ristil sé ég ætíð nokkrum sinnum á ári (enginn skráður
á mánaðarskrár). Margir þessara sjúklinga hafa fengið ristil áður.
Keflavíkur. Herpes zoster sá ég' á 2 sjúklingum.
21. Gulusótt (icterus epidemicus).
Töflur II, III og IV, 21.
S jnklingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl......... 478 89 199 62 21 6 43 72 33 4
Er nú aðeins getið í 3 héruðum (Patreksfj., Siglufj. og Húsavíkur),
og virðist hvergi hafa verið um faraldur að ræða.
Læknar láta þessa getið:
Hiisavíkur. Ég býst við, að talsvert meira sé um þenna kvilla en í
leitirnar kemur hjá læknum, því að venjulega mun það vera gulan,
sem rekur fólk til lækna, en margir fá kvilla þenna án þess að verða
gulir í augum eða hörundi, sem sýna má með þvag- og hægðarann-
sóknum.
22. Kossageit (impetigo contagiosa).
Töflur II, III og IV, 22.
S júklingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl......... 69 61 72 102 70 43 63 46 60 124
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Alltaf nefnd öðru hverju.
Ögur. Nokkur lilfelli síðustu mánuði ársins.