Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Side 52
50
filtrationir" í lungum“. Það næsta, sem af þessari stúlku er að segja,
er það, að hinn 1. nóvember síðastliðinn leggst hvin upp úr þurru
með allákafa ,,haemoptysis“ og er þegar með bullandi smit. Óneit-
anlega finnst mér nú ekki líklegt, að stúlkan, sem fær hinn umgetna
röntgendóm 25. marz 1938, hafi þá þegar verið búin að vera alllengi
smitandi og smita fjölda manns. Ef til vill er það þó ekki með ölln
óhugsandi, að hún kunni að hafa verið smitandi „með köflum", og
liefði hún þá getað gert hinn mesta usla. Moro- og' Pirquetpróf fram-
kvæmdi ég í öllum hreppum héraðsins í byrjun septembermánaðar.
Á Eyrarbakka og' Stokkseyri var prófað allt i'ólk á aldrinum 1—20
ára, eftir því sem til náðist, og' í öðrum hreppum allir til 18 ára fullra.
Samkvæmt berklaprófum árið 1939 smitast 17 í þeim 4 hreppum,
sem til samanburðar eru frá því í fyrra. 1 þessum hreppum 4 voru
alls prófuð 448 börn, svo að nýsmitun er 3,8%. Ákveðið hafði verið
að gera allvíðtækar gegnlýsingar að herklaprófunum loknum og hafa
þau að leiðarvísi í valinu. En sakir mikilla anna berklayfirlæknis
vannst ekki tími til að hefja þær fyrr en með nóvembermánáðar-
hyrjun. Auk þessarar hópskoðunar hef ég notað röntgentækin við
greiningu á lungnasjúkdómum í öllum þeiin vafatilfellum, sem hægt
var að koma því við.
Grímsnes. Af 150 berklaprófuðum börnum reyndust 14 Pirquet +•
Þar af voru 3 börn frá Reykjavík og 1 aðflutt annars staðar frá
síðastliðið haust í þetta hérað. Þess ber að geta, að ég varð að fela
kennurunum að lesa útkomuna við þessar prófanir. Berklayfirlæknir
athugaði alla nemendur á Laugarvatni síðastliðinn vetur.
Keflavíkur. Smitandi berklaveiki á 2 heimiluin, á öðru faðir og barn
hans, á hinu stúlka og telpa (8 ára). Öll skólabörn voru berklaprófuð.
3. Geislasveppsbólga (actinomycosis).
Töflur V—VI.
Héraðslæknar geta ekki um sjúkdóminn á árinu, en 1 sjúklingui’
með actinomycosis colli leitaði lækninga á röntgendeild I.ands-
spítalans.
Læknar láta þessa getið:
Síðn. Hef aldrei orðið var jiessa kvilla hér.
4. Holdsveiki (lepra).
Töflur V—VI.
Sjúklingafföldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Á Laugarnesi 24 21 19 19 22 19 18 18 17 17
í héruðum . . 11 10 8 8 9 7 7 6 5 4
Samtals .... 35 31 27 27 31 26 25 24 22 21
Utan sjúkrahúsa er getið um 4 sjúklinga í þessum héruðum í
árslok: