Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 107
105
in ekki smitandi, og 14 með virka berklaveiki í öðrum líffærum. Alks
voru framkvæmdar 800 gegnlýsingar og 65 röntgenmyndir teknar.
Hrákar rannsakaðir í 51 skipti og blóðsökksrannsókn 657 sinrium. Þá
var og framkvæmt viðtækt berklapróf (Mantoux) á flestum þeim, er
lil stöðvarinnar komu, enn fremur á öllum íbúum Saurbæjarhrepps,
16 ára og yngri, alls 97 manns. Öllum þeim, er voru með smitandi
berklaveiki, var útveguð vist í heilsuhæli og' auk þess mörgum þeirra,
er voru með virka berklaveiki, en ekki smitandi.
Undir beinu eftirliti stöðvarinnar voru í árslok taldir 72 sjúklingar.
Á árinu voru framkvæmdar 251 loftbrjóstaðgerðir á 29 sjúklingum.
Stöðin var opin tvisvar í viku, og störfuðu við hana eins og árið áður
1 hjúkrunarkona, héraðslæknirinn og yfirlæknir Heilsuhælisins í
Kristnesi.
Stöðin starfar í sjúkrahúsi bæjarins.
5. Heilsuverridarstöð Seyðisfjarðar.
Berklavarnir : Alis voru á árinu rannsakaðir 668 manns.
Reyndust 8 þeirra með virka berklaveiki, eða 1,2%. Aðeins l sjúk-
lingur var með smitandi lungnaberkla, 6 með virka lungnaberkia og 1
með berklaveiki í öðrum líffærum.
Undir beinu eftirliti stöðvarinnar voru í árslok 30 manns.
Víðtækt berklapróf var framkvæmt á öllum börnum á aldrinum
1—14 ára.
Loftbrjóstaðgerð var framkvæmd í 23 skipti á 3 sjúklingum.
Starfaði héraðslæknirinn einn að þessum rannsóknum stöðvar-
innar.
Stöðin starfar í sjúkrahúsi bæjarins.
6. Heilsuverndarstöð Vestmannaeyja.
Berklavarnir : Alls voru rannsakaðir á stöðinni þetta ár 750
manns. Reyndust 27 j)eirra, eða 3,6%, með virka berklaveiki. 5 sjúk-
lingar reyndust hafa smitandi lungnaberkla, en 1 var með opna út-
vortis berkla. 12 höfðu virka lungnaberkla, en ekki smitandi, og 9
virka berklaveiki í öðrum líffæruin.
Röntgenskyg'gningar voru framkvæmdar í 1121 sinn. Loftbrjóstað-
gerð var framkvæmd 75 sinnum á 8 sjúklingum.
Berklapróf var framkvæmt á öllum börnum héraðsins og auk þess
á fjölda fólks úr öllum stéttum. Að starfi þessu unnu eins og árið
áður hjúkrunarkona heilsuverndarstöðvarinnar ásamt héraðslæknin-
<im og' sjúkrahúslækninum.
Stöðin starfar í sjúkrahúsi bæjarins.
Sjúkrasamlög.
Samkvæmt upplýsingum Tryggingarstofnunar ríkisins voru lög-
skráð sjúkrasamlög á árinu sem hér segir, og er miðað við meðal-
meðlimatölu samkvæmt greiddum rikisstyrk:
Sjúkrasamlag Reykjavíkur ............... með 20840 meðl.
— Hafnarfjarðar....................... — 2063 —
— Akraness ........................... — 733 •—;
— ísafjarðar ......................... — 1529 —
— Siglufjarðar ....................... - 1639 -—
u