Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Síða 58
56
hinu sniitaða heimili. Var hann því nokkuð útbreiddur, er læknis var
leitað.
Hróarstungu. Faraldur um haustið. Voru suinir orðnir allitla út-
leiknir, þegar læknis var vitjað. Flestir virtust hafa náð í þenna kvilla
á Reyðarfirði um sláturtímann.
Norðfj. Undanfarið hefur stöku sinnum orðið vart við kláða í Norð-
fjarðarhreppi, og' hefur mig grunað, að hann væri þá vanalega sóttur
til Reyðarfjarðar, enda hef ég' stundum séð sjúklinga þaðan. Nú
hefur hann komið upp bæði í Neskaupstað og í Mjóafirði, en ekki
varð ferill hans rakinn.
Síðu. Rerst venjulega á 1—3 heimili á ári, helzt með tökubörnum
úr kaupstöðunum eða úr Reykjavík, en er strax læknaður. í ár kom
hann á 2 heimili.
Mýrdals. Liggur í landi, einkum undir Eyjafjöllum, og berst þaðan
austur eftir.
Vestmannaeyja. Barst hingað úr sveitinni með vermönnum og
kaupafólki.
Iiangár. Ber alltaf árlega á þessum leiða kvilla. Berst helzt í hér-
aðið á vorin með kaupstaðarbörnum.
Egrarbakka. Síðastliðið sumar fóru mér að berast undarlega margar
umkvartanir um, að fólk smitaðist af kláða í Hveragerði. Við eftir-
grennslan sýndi það sig, að eingöngu var um að ræða fólk, sem not-
aði laugina. Kom í ljós, að fatageymslunni var svo áfátt, að vel gat
komið til mála, að nærföt fólks lægju hver upp að öðrum. Varð sam-
komulag um endurbætur. Eftir þetla hef ég engar umkvartanir fengið.
Grimsnes. Með minna móti þetta ár. Barst í barnaskóla eins hrepps-
ins með barni frá afskekktum bæ. Gerð alvarleg tilraun til að lækna
hann, en býst við, að þessi kvilli eigi eftir að skjóta upp kollinum
aftur.
Keflavikur. Ég' hef rekið mig á unglinga, sem komið hafa úr sveit,
ineð þenna ósóma.
8. Ivrabbamein (cancer).
Töflur V—VI.
S júklingafföldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl......... 92 66 71 103 87 73 82 68 73 77
Dánir ........ 106 120 133 125 141 147 140 156 141 157
Sjúkratölurnar eru hér greindar samkvæmt mánaðarskrám.
Á ársyfirliti yfir illkynja æxli (þar með talin heilaæxli), sem bor-
izt hefur úr öllum héruðum, eru taldir 212 þess háttar sjúklingar
(margtalningar leiðréttar), 117 i Rvík og 95 annars staðar á landinu.
Af þessum 117 sjúklingum í Reykjavík eru 35 búsettir utan héraðs,
án þess að vera skrásettir þar. Sjúklingar jtessir, búsettir í Rvík, eru
því taldir 82, en í öðrum héruðum 130. Af sjúldingunum eru 99 karl-
ar, en 113 konur. Eftir aldri og' kynjum skiptast þeir, sem hér segir:
0—10 ára: 1 kona; 10—20 ára: 2 karlar, 2 konur; 20—30 ára: 1 karl,