Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Side 20
18
selja óg'erilsneydda mjólk frá Samsölunni. Svo brá við, að fyrsta demb-
an virtist alveg stöðvast og aðeins standa fáa daga. Að visu sýkjast
nokkuð margir eftir það, en það virtist þá mestmegnis fólk, er tekið
liafði smitun frá hinum fyrri sjúklingum. Um áramótin er blóðsóttin
ekki að fullu horfin, en þó svo i rénun, að hún getur ekki lengur
talizt faraldur. Gera má ráð fyrir, að sumt af því, sem læknar telja
„gastroenteritis“, hafi einnig verið blóðsótt. Ur blóðsótt þessari dóu
9 ára stúlka og 5 ára drengur. Auk þess er um þessar mundir 5 vikna
gamalt barn talið dáið úr gastro-enteritis, sem gæti vel hafa verið
blóðsótt.
Boi-garfi. 4 tilfelli. Smitun beint frá Reykjavík.
Síðu. Mun hafa verið í 1 barni, er ég hafði til meðferðar í nóvem-
ber, en þar sem aðrir, er í þeim mánuði leituðu til mín með 'maga-
slæmsku, höfðu ekki séð blóð í hægðum, gerði ég' ráð fyrir, að um
venjulegt garnakvef væri að ræða. Seinna fékk ég að vita um karl-
mann, sem hafði fengið blóðsótt, en ekki leitað til mín.
Vestmannaegja. Paradysenteria gerði vart við sig undir áramótin.
Komin úr Reykjavík.
Egrarbakka. Barst að Selfossi seint í desembermánuði. G'ætti ekki
að neinu marki, fyrr en upp úr áramótunum.
5. Barnsfararsótt (febris puerperalis).
Töflur II, III og IV, 5.
S júklingafjöldi 1930—1939:
1930 1931 1932 1933 1934 1935 1936 1937 1938 1939
Sjúkl........ 14 15 9 9 3 6 fi 9 9
Dánir ....... 5 3 1 3 2 3 1 3 3 2
Á mánaðarskrám eru aðeins taldar þessar 7 konur, er fengið haía
barnsfararsótt, í jafnmörgum héruðum. A ársyfirliti um barnsfarir er
auk þess getið um 8 sjúklinga í fi öðrum héruðum (Borgarnes 2,
Flateyrar 1, Ólafsfj. 1, Akureyrar 1, Höfðahverfis 1 og Berufj. 2), en
vafasamt virðist um sum þau tilfelli, hvort telja eigi til barnsfarar-
sóttar.
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Að vísu tel ég, að 2 konur hafi fengið snert af barns-
fararsótt, en ég' setti þær ekki á mánaðarskýrslur vegna þess, hve
sýkin var undarleg og ólík sjálfri sér. Hiti hafði ekki byrjað, fyrr en
5-—6 dögum eftir fæðingu, og engin einkenni koma frá fæðingarlít-
l'ærum, ekki eymsli, aukin útferð né slíkt.
Blönduós. 1 kona úti í Nesjaumdæmi. Batnaði við súlfanílamíð.
Sauðúrkróks. 1 tilfelli á árinu, multipara, er veiktist eftir 9 daga
frá normal fæðingu. Batnaði fljótt við prontosíl.
Úlafsfj. 1 stúlka, sem fæddi í annað sinn, fékk barnsfararsótt 3
vikum eftir fæðingu (ekki skráð á mánaðarskrá). Hafði verið á fót-
um í viku, er hún veiktist með háum hita, uppsölu, verk í lcvið og
holeymslum. Fæðingin gekk vel og eðlilega. Lá ca. mánuð og batnaði
að l'ullu.