Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 144
142
15 þús. kr. Við Kleifaþorpið, vestan fjarðar, var steypt bryggjuker
mikið. Kostnaður um 7500 kr. Raftauganetið í kauptúninu var lagt
að nýju. Kostnaður 20 þúsund kr. Reiknast það hluti af fyrirhugaðri
virkjun Garðsár, sem þó varð ekki af á árinu, eins og ti) stóð. Samt
var gerð undirstaða undir stífluna i G,arðsá, er kostaði um 7 þúsund kr.
Svarfdæla. Hafin var hafnargerð á Dalvík með miklum tilkostnaði,
sem mestur fór að þessu sinni í undirbúning, enda verður þetta mikið
og dýrt fyrirtæki fullgert, en ekki að ófyrirsynju hafið, því að lífs-
skilyrði kauptúnsbúa sýnast undir því komin, hver aðstaðan verður
til sjávarútvegs. íshús á Dalvík var stækkað. Stór kartöflúgeymsla
byggð. 2 stórir og góðir vélbátar til fiskveiða keyptir á Dalvík, 1 í
Hrísey og 1 á Árskógsströnd.
Húsavikur. Hér í þorpinu hefur verið lagt nokkuð af vegum til
nýrra túnstæða og væntanlegra kartöflugarða, sem ætlazt er til, að
þorpsbúar noti næsta ár. Hraðfrysling, sem hér var, hefur verið
stækkuð mikið. Á Hveravöllum hefur verið byggt stórt gróðurhús til
viðbótar því, sem áður var, og eru þar ræktaðir tómatar. Hér fram
úi' og fram undan höfðanum, utanvert við þorpið, kemur volgt og
heitt vatn (frá 40—70 st. C.). Eru og volgar uppsprettur hér yzt og'
efst í þorpinu. Er hér um að ræða heita æð, sem mikils virði væri, að
vel væri rannsökuð, því að hér finnst mér sennilegt, að hægt væri að
fá nægilegt heitt vatn til að hita upp þorpið.
Öxarfj. Nýr mótor kom í frystihúsið á Kópaskeri.
Þistilfj. Lokið við hafnarg'erð í Þórshöfn, sjóvarnargarð og' bryggju,
að því leyti sem þetta verk hafði verið áætlað í byrjun. Sjmir sig', að
meira þarf að g'era, þó að þetta, sem komið er, sé til stórbóta og verði
þorpinu vonandi til hagsbóta. Á þessu ári tókst mér loks að fá mælt
fyrir og gerða áætlun um vatnsleiðslu fyrir þorpið. En rétt þegar því
var lokið og átti að fara að hugsa til framkvæmda á þeim grundvelli,
er þar var feng'inn, þá kom stríðið og velti öllum áætlunum og' von-
um um framkvæmdir um sinn.
Norðfj. Af samtökum er hér elzt lifrarbræðslufélagið — víst nærri
30 ára. Samvinnufélag útgerðarmanna sér um ýmis sameiginleg mál
útgerðarinnar: sölu á fiski, kaup á útgerðarvörum og ýmsu þvi, er út-
gerðarmenn þarfnast, o. fl. Hraðfrystihús er hér allstórt, og er það
mikil stoð atvinnuveganna, auk þess sem það veitir talsverða vinnu.
Fóðurmjölsverksmiðja og síldarhræðsla eru sambyggð fyrirtæki, sem
hærinn átti, en varð að sleppa sökum taps á rekstri. Eignaðist Lands-
bankinn á Eskifirði þau og hefur rekið nú síðustu árin.
Berufj. Haldið áfram ræktunarframkvæmdum hér í þorpinu, og'
komust um 18 dagsláttur af ræktunarlandinu í fulla rækt á árinu, og
um 12 dagsláttur voru auk þess brotnar og' hafrasánar. Þá hefur
Ræktunarfélagið komið sér upp kartöflugarði, um 1 hektara að stærð,
og er ætlunin, að arði hans verði varið til greiðslu á afborgunum og
vöxtum af þeim lánum, sem á ræktuninni hvíla. Leggja félagsmenn
l’ram alla vinnu við hann. Á síðastliðnu sumri fengust úr honuin um
180 tunnur af kartöflum. ___
Vestmannaeyja. Lifrarsamlag Vestmannaevja hefur komið upp
kaldhreinsunarstöð við lifrarvinnslustöð sína. Hraðfrvstihús inn-