Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1939, Blaðsíða 118
116
kosti ekki með þeim eldiviði, sem almennt er kostur á — torfi og
sverði.
Seyðisfi. Húsakynni og þrifnaður í sæmilegu lagi, en auðvitað
nokkuð misjafnt, eins og gerist. Yfirleitt er húseignum í kaupstaðn-
um haldið vel við, máluð eftir þörfum, og við fjölda húsa hefur verið
komið upp blóma- og trjágörðum, sem eru orðnir til mikillar prýði.
Mikill áhugi er hér vaknaður fyrir trjárækt.
Norðfi. Enn er beðið eftir árferði, sem væri nægilega gott til þess,
að. menn gætu dyttað ögn að húsum sínurn, að ekki séu nefndar ný-
byggingar. Frekar hefur það verið á sveitabæjum, að húsabætur hafa
verið gerðar. I kaupstaðnum er síður þörf fyrir ný hús, því að menn
sækja þaðan og elcki síður þeir, sem stærri íbúðir hafa notað, svo að
það rýmkast um þá, sem eftir sitja.
Reijðarfj. Húsakynni lík og áður, nema hvað hús eru betur hirt að
utan nú en áður, miðstöðvum og vatnssalernum fjölgar árlega í þorp-
unum. Þrifnaður sæmilegur, víðast góður. Ullarvinna á heimilum
hefur aukizt mikið þetta ár.
Berufj. 2 íbúðarhús voru reist á árinu, annað úr steini, hitt úr
timbri. Húsakynni hafa stórum batnað í sveitum á undanförnum ár-
um, en í þorpinu hrörna húsin vegna þess, að menn hafa ekki efni á.
að endurbæta þau. Þrifnaður viða sæmilegur, þó að undantekningar
séu margar.
Síðu. Húsakynni víðast hvar orðin viðunandi. Þó eru einstöku
hjallar enn þá örifnir. Þrifnaður er víðast sæmilegur. Þar sem mest
bar á sóðaskap og lús á sumum barnmörgum heimilum, hafa börnin
farið að heiman í atvinnuleit, og hafa þá flutt heim með sér fágun og
menningu. Salernum fjölgar nú ört. Er það einkum í sambandi við
safnþrær.
Mýrdals. Húsakynni og þrifnaður í sæmilegu lagi.
Vestmannaeyja. Lítið byggt af nýjum húsum á árinu.
Grímsnes. Byggingaöld hefur verið hér mikil undanfarin ár. Mörg
ibúðarhús hafa verið byggð, einkum úr steinsteypu og nokkur úr
timbri, enn fremur útihús, hlöður, fjós, haughús og safnþrær. Raflýst
liefur verið á 2 heimilum með vatnsafli, og nokkrir bændur hafa
fengið vindmyllur til raflýsingar. Reynast þær vel, einkum hin ame-
ríska g'erð þeirra.
Keflavíkur. Bættum húsakynnum fjölgar stöðugt í héraðinu, nema
í Grindavík.
5. Fatnaður og matargerð.
Með bréfi dóms- og' kirkjumálaráðuneytisins 5. júní 1939 var stofn-
að til rannsókna á mataræði landsmanna og í því skyni skipað 7
manna manneldisráð. í ráðinu eiga sæti landlæknir, sein er forseti
ráðsins, kennarinn í heilbrigðisfræði við Háskólann, sem er fram-
kvæmdarstjóri þess, forstöðumaður Rannsóknarstofu Háskólans,
berklayfirlæknirinn, tryggingaryfirlæknirinn, hagstofustjóri og einn
af bankastjórum Landsbankans. Var þegar hafizt handa um þessar
rannsóknir, og' byrjað á athugunum á því, hvernig mataræði lands-
manna væri nú ahnennt háttað. Voru 65 fjölskyldur víðs vegar um