Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 124
122
lómatar, sem svo að segja allir eru sendir á fjariægan markað, því að
sveitafólk hefur ekki efni á að kaupa svo dýra framleiðslu.
Sauðárkróks. Karlmenn munu yfirleitt klæðast hentugum búningi
og hlýjum, en kvenfólkið fylgir tízkunni, hvernig sem hún hentar.
Fólk mun hafa nægileg'a mjólk og nýmeti flesta tima árs. Þegar ekki
fiskast, má oftast fá hraðfrystan fisk í pökkum. Smjör hefur ávaltt
fengizt nægilegt hér í mjólkursamlaginu, þar til í vetur, að skortur var
á því stundum. Uppskera garðávaxta brást mjög á síðast liðnu hausti,
og munu margir því hafa of lítið af þeim í vetur, en annars ræktar
fjöldinn af fólki nægilegt af garðávöxtum til heimilisins og sumir
fram yfir það.
Ólafsff. í kauptúninu er mikið notað af útlendum nærfatnaði. Kven-
félagið gekkst fvrir saumanámskeiði.
Höfðahverfis. Fatnaður hefur mjög litlum breytingum tekið. Þó
má nefna það, að nokkuð er farið að nota skinn til fatagerðar, skinn-
in sútuð og síðan saumaðir úr þeim stakkar, sem eru mjög hlýir.
Matargerð hefur engum breytingum tekið.
Vopnaff. Heimilisiðnaður er nú að mestu úr sögúnni vegna fólks-
skortsins i sveitum. Fatnaður er því keyptur í búðum meira en áður.
Allar stúlkur ganga nú í silkisokkum, og yfirleitt má segja, að fólk
gangi betur til fara en áður. Matarræði mun litlum hreytingum hafa
tekið. Uppskera garðávaxta varð sama og engin, og mun því neyzla
þeirra matvæla hafa verið miklu minni en undanfarið. Mjólk er viðast
nóg'.
Fljótsdals. Vinnuföt karlmanna mestmegnis samfestingar, að-
keyptir úr útlendu efni, togsokkar og gúmstígvíl eða gúmskór.
Kaupfélag Héraðsbúa rekur nú saumastofu með lærðum klæðskera, og
hefur snyrtimennska og samræmi í klæðaburði karla vaxið við það.
Klæðnaður kvenna er eins og gengur og gerist uin land allt. Matar-
gerð fremur fábreytt, einkum að vetrinum. Mjólk þó rífleg alls staðar
og' kartöflur ræktaðar á hverjum bæ, að undan skildum Jökuldal.
Víða eru ræktaðar gulrófur og grænmeti, en allt of Htið enn þá. Síld
sést varla á nokkru borði. Kökugerð mikil.
Seijðisff. Mjög áberandi, hve bæði konur og karlar ganga betur
klædd til spari. Vinnufatnaður hinn sami. Hvað matarræði snertir,
er vaxandi vöntun á mjólk og mjólkurafurðum. íslenzkt smjör sjald-
gæfara en suðræn aldini. Eggin í óheyrilegu verði og því ekki á hvers
manns borði. Fiskbúð var sett upp að haustinu, og fæst þar alltaf nýr
eða frosinn fiskur, saltfiskur, síld, hákarl o. fl. Þetta er til mikilla
þæginda fyrir fólk, auk j)ess sem matreiðslan verður bæði fjölbreytt-
ari og hollari. Einnig er að komast á laggirnar nokkurn veginn ný-
tízku kjöthúð, en kjötsölu hefur áður verið mjög ábóta vant. Gott
hraðfrystihús er i bænum. Leggja margir mat inn i það að haustinu,
og er svo þaðan hægt að fá hann eftir vild. Nýmeti er því alltaf nægi-
legt jafnt vetur sem sumar.
Fáskníðsfí. Fatnaður og matargerð með svipuðum hætti og síðast
liðin ár. Grænmetisrækturi eykst smám saman, en tilfinnanlegur
skortur er enn sem fyrr á nógu og' góðu vatni.
Beruff. Yfirleitt held ég megi segja, að fólk gangi sæmilega til fara.