Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 139
137
Miðjj. Mjög myndarlegri kirkju er verið að koma upp í stað hinnar
gömlu, sem fauk á Melstað um árið.
Sauðárkróks. Hcr á Sauðárkróki vantar nú tilfinnanlega samkomu-
hús, stærra en það, sem fyrir er, en verður væntanlega ekki úr hætt
fyrr en eftir stríð. Snemma á þessu ári var lokið við endurbætur
á aðalgistihúsinu í bænum, Hótel Tindastól, en það hafði undanfarin
ár verið í hers höndum. Er það ágætt, svo langt sem það nær, en á
sumrum of lítið.
Ólafsfi. Eigendaskipti urðu að samkomuhúsi kauptúnsins. Ætlunin
er að reka húsið sem kvikmyndahús, og hefur verið veitt sýningar-
leyfi til 10—15 ára. Engin breyting' fór fram á húsinu önnur en sú,
að sýningarklefi var gerður. Gólfið í húsinu er alveg að verða ónýtt.
Miðstöðvarofn var tekinn úr kirkjunni og oliuofn settur i staðinn,
einnig nýr reykháfur. Ekki reyndist það betur, því að í vissri átl
reykir ofninn mjög, svo að ólifandi er fyrir olíustybbu.
Höfðahverfis. Gólf samkomuhússins hefur verið ferniserað, og er
það til mikilla hóta. Girðing í kringum kirkjugarðinn á Grenivík
hefur verið máluð.
Fljótsdals. Samkomuhús í 3 hreppum af 5 og eru sæmilegustu hiis,
en geta þó ekki talizt fullgerð. Upphitun aðeins i einu þeirra. Kirkjur
3 úr timbri og 2 úr steini, sæmileg'ustu hiis, en upphitun þeirra er
nijög ábóta vant.
Vestmannaeijja. Sæmileg umgengni um samkomuhús, en her út af
stundum, einkum ef áfengi er um hönd haft á skemmtunum.
Grímsnes. Samkomuhús eru í öllum hreppum héraðsins, nema Laug-
ardalshreppi, sæmileg og hægt að koma upphitun við. 1 þeirra, í
Hrunamannahreppi, er upp hitað með hveravatni. Kirkjur sumar
óupphitaðar eða illupphitanlegar.
18. Meindýr.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Meindýraeyðir bæjarins gefur svo látandi skýrslu: „Á árinu
fór engin alls herjar rottueyðing fram, en ég sinnti kvörtunum dag-
lega, nema frá 12. til 20. júlí, er ég var ekki í bænum. Hef ég eklci
hókað nákvæmlega magnið af matvælum, eitri eða fjölda húsa, sem
ég lét rottueitur í, nema tíinabilið frá 1. janúar til 15. júní. Á þeim
tima lét ég rottueitur í 177 hús og notaði ca. 2300 eiturskammta. 14.
maí hyrjaði ég' að eyða rottu með gasi, Cyanogas (Calcium Cynanide)
á Granda (öskuhaugum bæjarins). í þetta sinn vann ég að þessu í 12
daga og dældi gasi í 1043 rottuholur. 22., 23., 24. júní fór ég með gas í
14 svínabú í bænum og nágrenni. Húsin eru flest ófullkomin, vegna
þess að þau eru ekki rottuheld (gas er ekki hægt að nota i húsum,
þar sem skepnur eru). Ég gat dælt gasi í 96 rotluholur. 8.—15. nóvem-
her og 7. desember dældi ég gasi í 257 rottuholur á Granda. Notaði
43,5 kg Cyanogas. Árangur af gaseyðingu er góður, þar sem hægt er
að koma henni við. Ég álit, að gaseyðing sé fljótlegasta, hreinlegasta
og mannúðlegasta aðferðin til að eyða rottum.“
Borgarnes. Veit ekki til, að veggjalýs og húsaskítir séu til í hér-
aðinu. Flugur eru leiðindagestir nokkurn hluta sumars. Rottur eru
18