Andvari - 01.01.2018, Blaðsíða 38
ANDVARI ÁRMANN SNÆVARR 37
fjölmarga fræðilega fyrirlestra hér á landi, á vegum ýmissa félaga og
stofnana, og einnig í öðrum löndum eins og síðar verður vikið að.
Ármann var einstakur afkastamaður á hinum lögfræðilega ritvelli.
Eftir hann liggja fleiri rit en nær alla aðra íslenska lögvísindamenn. Hér
hæfir ekki að leitast verði við að birta heiti allra þeirra ritsmíða heldur
verður að vísa til nákvæmrar greinargerðar um þau í Lögfræðingatali
og jafnframt ítarlegrar samantektar í Heiðursriti Ármanns Snævarr,
bls. 491-505.
Einungis verður hér um fremur stutt yfirlit að ræða, sem þó á að
gefa innsýn í fræðaheim Ármanns. Af frumsömdum bókum skulu hér
þessar nefndar:
1953: Almenn lögfræði (fjölritað), kom síðan út í átta útgáfum, lengst af fjöl-
ritað þar til ritið kom út í vandaðri útgáfu 1989.
1959: Þættir úr refsirétti (fjölritað).
1966: Þættir úr réttarsögu (fjölritað).
1968: Vernd barna og ungmenna, yfirlit (fjölritað); [2] Þættir úr erfðarétti
(fjölritað); [3] Þættir úr refsirétti 2 (fjölritað).
1969: Sifjaréttur, lok hjúskapar (fjölritað); [2] Um fjárskipti vegna skilnaðar
og um takmarkanir á forræði maka yfir hjúskapareign sinni vegna tillits til
hins makans eða fjölskyldu (fjölritað).
1970: Forspjall að sifjarétti og fyrirlestrar í sifjarétti (fjölritað).
1971: Fyrirlestrar í sifjarétti I og II (fjölritað).
1975: Þættir úr refsirétti I, 2. útg. breytt (fjölritað).
1979: Fyrirlestrar í íslenskum erfðarétti I og II (fjölritað).
1982: Barnaréttur (fjölritað) og síðari útgáfur.
1983: Þættir úr refsirétti II (fjölritað).
1985: Fyrirlestrar í sifjarétti I-III (fjölritað).
1988: Sifjaréttur I-III, 4. útg. (fjölritað) og síðari útgáfur.
1991: Erfðaréttur, 2. útg. (útg. Námssjóður Lögmannafélags Íslands).
2008: Hjúskapar- og sambúðarréttur, útg. Bókaútgáfan Codex.
Eftir Ármann birtust fjölmargar ritgerðir í fræðiritum (einkum tíma-
ritsgreinar og greinar í safnritum). Hér skal nokkurra þeirra getið: