Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Síða 126
FITJAð Upp Á nýTT
125
haustið 1965 og hún sagði síðar frá því hversu tvíbent sú reynsla hafi verið,
annars vegar að upplifa bjartsýni um að framundan væru miklar breytingar
innan rómversk kaþólsku kirkjunnar, en hins vegar að verða vitni að því
karlræði sem þar ríkti.12 Í nýjum formála að bók sinni, The Church and the
Second Sex sem upphaflega kom út árið 1968 en var endurútgefin árið 1975
og aftur árið 1985, segir Daly frá því að það hafi meðal annars verið reynsla
hennar á Vatikanþinginu sem varð til þess að hún skrifaði bókina.13 Bókin
var skrifuð undir áhrifum frá franska heimspekingnum Simone de Beauvoir
(1908–1986) (sem Daly bendir á að hafi einu sinni tilheyrt rómverks kaþ-
ólsku kirkjunni)14 og bók hennar um hitt kynið,15 en með henni lagði Daly
grunninn að femínískri guðfræði. Í bókinni gagnrýndi Daly kirkjuna fyrir
afstöðuna til kvenna og fyrir að viðhalda hefðbundinni hugmynd um konur
sem bæði upphefur þær og niðurlægir.16 Þó að Daly væri ekki tilbúin til að
kveðja kirkju og kristni í bókinni um kirkjuna og hitt kynið, þá var þess ekki
langt að bíða að það yrði raunin.17
Í upphafi áttunda áratugarins hafði Daly komist að þeirri niðurstöðu að
ekki aðeins kirkjustofnunin (kristin kirkja almennt) heldur líka kristin trú
væri svo samofin feðraveldinu að femínistar hefðu ekki val og gætu ekki
annað en klippt á öll tengsl. Reyndar væri bæði kirkja og kristni beinlínis
hættuleg konum og því eins gott fyrir þær að forða sér. Daly gerir grein
tions/cfaith/documents/rc_con_cfaith_doc_19761015_inter-insigniores_en.html.
Þessi niðurstaða hefur síðan verið áréttuð af öðrum páfum, nú síðast af Frans páfa,
þó að hann hafi ákveðið að óvígðar konur mættu lesa ritningartexta í messum. Sjá:
„pope Francis: Ministries of lector and acolyte to be open to women“, Vativan News, 2021,
sótt 15. apríl 2022 af https://www.vaticannews.va/en/pope/news/2021-01/pope-francis-opens-
ministries-lector-acolyte-women.html.
12 Sama heimild, bls. 9–10.
13 Sama heimild, bls. 10.
14 Daly, The Church and the Second Sex, bls. 16–17.
15 Simone de Beauvoir, The Second Sex, ensk þýð. H. M. parshley, new York: Vintage
Books, 1989.
16 Sama heimild, bls. 53.
17 Bókin var engu að síður ástæða þess að Daly missti kennarastöðu sína við Boston
College. Skólinn neyddist til að láta undan miklum mótmælum fólks og kröfum
þeirra um að Daly fengi aftur stöðu sína. Daly fékk fastráðningu sem hún hélt til
1999, þegar henni var aftur sagt upp, en skólinn neitaði henni ítrekað um framgang
í stöðu prófessors (sama heimild, bls. 11–12). Sjá einnig: Caryn D. Riswold, Two
Reformers. Martin Luther and Mary Daly as Political Theologians, Eugene, Oregon:
Cascade Books, 2007, bls. 32–33. Daly var að lokum neydd til að hætta og fara á
eftirlaun eftir að hafa neitað beiðni karlnemanda um að sitja í inngangsnámskeiði í
femínískri siðfræði (Riswold, Two Reformers, bls. 152–153).