Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Blaðsíða 171
HóLMFRÍðuR GARðARSDóTTIR
170
var svo þegar að þrengdi að konur tóku til sinna ráða. Sögur segja frá því
þegar þær söfnuðust saman árið 1867 á fundi í höfuðborginni, Asunción,
sem nefndur hefur verið fyrsti fjöldafundur kvenna í Rómönsku-Ameríku
og ákváðu að leggja inn skartgripi sína svo bræða mætti þá í byssukúlur.26
Þegar svo flestum vopnbærum karlmönnum hafði verið útrýmt fara sögur
af þátttöku sömu kvenna í vopnuðum átökum.27 Svipaða sögu er að segja frá
mexíkósku byltingunni sem braust út árið 1910 og stóð í rúman áratug.28
Þótt ekki sé mikið gert úr þátttöku kvenna í vopnuðum átökum fylgdu þær
herflokkunum í hópum og sáu jafnt um matargerð og þvotta. Viðbrögðum
kvenna við því að þeim var ekki greidd umbun fyrir þátttöku sína í borgara-
styrjöldinni til jafns við karla má til dæmis kynnast í bók Elenu Poniatowsku
Jesúsa: Óskammfeilin, þverúðug og skuldlaus.29
Ástæður byltingarinnar voru fjölmargar, en fræðimaðurinn Barbara
Potthast leggur áherslu á að iðnvæðing, þéttbýlis- og borgarmyndun, fólks-
flutningar frá Evrópu og aukin efnahagsleg velsæld í lok 19. aldar hafi haft
gríðarleg áhrif á stjórnmálaþróun álfunnar, framgang vísinda, fræða, menn-
ingar og lista.30 Francesca Miller bætir við mikilvægi þeirra nýju hugmynda
sem innflytjendurnir báru með sér enda skapaðist í ölduróti iðandi mann-
mergðar stórborga frjór grundvöllur til skoðanaskipta og uppfærslu eldri
hugmynda.31 Í umræddum suðupotti varð atvinnuþátttaka kvenna mikil,
svo sem í spuna- og textílverksmiðjum, við afgreiðslu- og þjónustustörf,
á saumastofum, við matvælaframleiðslu, barnakennslu og fleira, og þessar
konur urðu kveikjan að stofnun ýmiss konar kvennahópa, hreyfinga og
26 Ana Pais, „La historia de las mujeres que donaron sus joyas para financiar al ejército
de Paraguay en la Guerra de la Triple Alianza“, BBC Mundo, 22. desember 2017.
Sótt þann 28. ágúst 2022 af https://www.bbc.com/mundo/noticias-41582324.
27 Barbara Potthast, „Algo más que heroínas. Varias roles y memorias femeninas de La
guerra de la Triple Alianza.“ Diálogos, 10: 1/2006, bls. 89–104. Sótt þann 28. ágúst
af https://www.redalyc.org/pdf/3055/305526864009.pdf.
28 um það vitnar meðal annars skáldsagan Lýðurinn (s. Los de abajo) eftir Mariano Azu-
ela, sem út kom í þýðingu Guðbergs Bergssonar, hjá Máli og menningu, árið 1994.
29 Elena Poniatowska, Jesúsa: Óskammfeilin, þverúðug og skuldlaus, þýðing María Rán
Guðjóndsdóttir, Reykjavík: JPV, 2012.
30 Sem dæmi má nefna að í Buenos Aires bjuggu árið 1869 180.000 manns. Árið 1915
var íbúafjöldinn rétt undir 1,5 milljón og 60% kvenna í borginni hafði fæðst í öðru
landi. Potthast, B., Madres, obreras, amantes… Protagonismo femenino en la historia de
América Latina, Madrid: Iberoamericana 2010, bls. 193.
31 Francesca Miller, „Latin American Feminism and the Transnational Arena“, Wo-
men, Culture, and Politics in Latin America, Ritstj. Bergmann, E., o.fl., Berkeley: uni-
versity of California Press, 1990, bls. 10–26. Hér af bls. 12.