Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Qupperneq 184
ÞRAuTSEIGAR OG ÞORA!
183
þeim frá vöggu til grafar. Og fyrir ungu konurnar í síleska aðgerðarhópnum
Tilgáta (s. Tesis), hugmyndasmiði uppákomunnar um nauðgarana, var komið
nóg. Þær sátu ekki lengur undir síendurteknu áreiti og ofbeldi gagnvart
konum og refsileysi karla. Þær gripu til sinna ráða, voru þrautseigar og þær
þorðu. Í samstöðunni fólst kraftur og þeim óx ásmegin. Að tilheyra fjölda-
hreyfingu valdefldi þessar konur. Þær hlógu, sungu, gerðu að gamni sínu,
héldust í hendur og fóru um í hópum. Alda mótmæla stóð yfir í Síle í marga
mánuði og virk þátttaka kvenna var áberandi og vakti athygli. Takmarkanir
og lokanir vegna Covid settu þó strik í reikninginn. Fjárhagsvandi fólks óx og
virkaði sem olía á eldinn. Kröfugerðin var margþætt.86 Nýrrar stjórnarskrár
var krafist, leiðréttinga á launakjörum, hækkun ellilífeyris, réttlætis til handa
konum og frumbyggjum, aðgerða í umhverfismálum og fleira. óróinn var
mikill og miðbæir stærstu borga Síle urðu átakasvæði. Það var svo um mitt
ár 2021 að samtakamátturinn skilaði árangri. Samþykkt var að ráðast í gerð
nýrrar stjórnarskrár og 155 fulltrúar voru kosnir til að sinna því verki.87 Elisa
Loncón, málvísindakona og kennari úr röðum Mapuche indíána og femin-
ískur aðgerðarsinni, var sett yfir ferlið en síðar tók faraldursfræðingurinn
María Elísa Quinteros við því hlutverki.88 Kosningar fóru svo fram þann 19.
desember 2021 og Gabriel Boric, 36 ára gamall fulltrúi flokkabandalags á
vinstri væng stjórnmálanna, var kjörinn forseti.89 Í byrjun árs 2022 tilkynnti
hann svo skipan ríkisstjórnar sinnar og í fyrsta skipti í sögu Síle skipa konur
meirihluta.90 Væntingarnar eru miklar og vonandi tekst nýjum valdhöfum að
lægja öldurnar og leiðrétta misskiptingu auðs og valda í landinu.
86 Mauricio Morales Quiroga, „Chile’s perfect storm. Social upheaval, COVID-19
and the constitutional referendum“, Contemporary Social Science, 16: 5/2021, bls.
556–572.
87 Núgildandi stjórnarskrá er frá 1980, það er valdatíma einræðisherrans Augusto Pi-
nochet (1974–1990). Í hópnum eru 17 fulltrúar hinna ólíku frumbyggjasamfélaga
landsins, sjö sæti eru frátekin fyrir Mapuche fólkið, tvö fyrir fólk af Aymara uppruna
og síðan eitt fyrir átta aðrar fámennar en skilgreindar þjóðir. Sjá til dæmis Carolina
Pérez Dattari, „Chile: the battle for a transformative new constitution“, tni, 2021,
án blaðsíðutals. Sótt þann 28. ágúst 2022 af https://www.tni.org/en/article/chile-
the-battle-for-a-transformative-new-constitution.
88 Jennifer M. Pérez Piscopo og Peter M. Siavelis, „Chile´s Constitutional Moment“,
Current History, 120: 823/2021, bls. 43–49.
89 Boric sat á þingi 2014–2018, stundaði nám í lögfræði og tók formlega við völdum
13. mars 2022. Á ferilskrá hans ber hæst virk þátttaka í aðgerðum og mótmælum
með stúdentahreyfingum háskólanema og hugmyndavinna fyrir fjöldahreyfingar
ungs fólks og aðgerðarsinna á vettvangi umhverfismála.
90 14 konur sitja í 24 ráðherra hópi og þeirra á meðal er Maya Fernandez, nýr varnar-
málaráðherra landsins.