Úrval - 01.02.1962, Blaðsíða 145
RA UÐHÆRÐA KONAN
153
fjárhirzlum konungs tókst henni,
áður en lauk, aS ná tangarhaldi
á tæpum 137 þúsund sterlings-
pundum, og var það þrefalt meira
en þeim Nell Gwynn og Lady
Castlemaine hafði til samans tek-
izt að herja út úr konungi. Ofan
í kaupið tókst henni svo að ginna
konung til að veita sér 12 þúsund
punda lífeyri árlega, og skyldi
hann veittur erfingjum hennar,
er hún væri öll, um allan aldur.
Þótt Louise hefði alltaf verið
varkár, var nú svo komiö, að
hið sanna erindi hennar til Eng-
lands var tekið að spyrjast. Þegar
almenningur lcomst á snoðir um;
að í rauninni væri hún njósnari
og erindreki Frakka, fylltist
hann óstjórnlegri lieift. Louise
varð þess skjótlega vör, og nú
tók hún að hugsa til öruggs hæl-
is í Frakklandi, er liún gæti hald-
ið til, þegar hún yrði að hverfa
hrott frá Englandi. Beitti hún nú
öllum áhrifum sínum yfir hinum
hugfangna konungi og tókst að
fá hann til að veita sér að léni
hertogadæmið Aubigny. Bættist
þannig titillinn hertogaynja af
Aubigny við allan hennar titla-
lista, og þótti þá mörgum nóg
um.
Það kom einnig á daginn, áður
en langt um leið, að hér haföi
Louise farið viturlega að ráði
sínu, 'því að áður en hinum fok-
illa almenningi og stórreiðu
brezku ríkisstjórn hafði gefizt
tími til að hefjast handa um að
ryðja Louise úr vegi, kom í ljós
á festingunni ný stjarna. Var það
barnung spænsk hertogaynja,
Hortense Mazarin að nafni, ný-
komin frá Spáni, og þótti fegurð
hennar svo óvenjuleg og stórkost-
leg, að konungur liaföi hana ekki
fyrr augum litið en hann stein-
gleymdi Louise. Samtímahöfund-
ar segja, að fegurð Hortense hafi
verið næstum því ótrúleg, og hafi
hún engin hjálpartæki þurft til
að ná fullkominni fegurð. Hún
var ekki fyrr komin í Whitehall
en fegurð hennar vakti þar al-
mennt uppnám, og jafnskjótt
tóku þær að beina að henni
skeytum sínum, Nell Gwynn og
Lady Castlemaine, rétt eins og
að Louise á sínum tíma. Var nú
Louise í skyndi send á eitt af
sveitasetrum konungs, en hann
tók að njóta ásta Hortense i hin-
um glæsilegu fyrrverandi húsa-
kynnum Louise í Whitehall.
Áður en langt um leið, tóku
veikindi að sækja á konung, og
leitaði hann þá aftur til Louise.
Greip hún tækifærið tveim hönd-
um og hóf framkvæmdir á öðrum
lið hernaðaráætlunar sinnar.
Hvatti hún nú konung til að sam_
þykkja með undirskrift sinni
annan lið Dover-samningsins, en