Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 10
14
ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS
1. 58.095. Kistill úr furu, festur saman með trétöppum. Hjörur,
skrá og skráarlauf úr járni, handraði með loki á tappahjörum. Okar
eru festir undir enda loksins við gaflana. L. (loksins) 41.2, br. 26,
h. 20.5.
2. Viðurinn feyskinn, flagnaður og sprunginn. Skrautverkið er
slitið. Hjörur og læsing lélegar. Ómálaður. 22. mynd. 6.Á.f.
3. Lágt upphleyptur útskurður á hliðum og göflum. Á 'hliðunum
eru stöngulteinungar, á göflunum tveir hringar, um 1.5 sm breiðir,
þræddir saman, og í hverjum um sig er lóðréttur stöngull eða stafur
með sína pálmettu á hvorum enda. Á öðrum gaflinum eru báðir hring-
22. mynd.
arnir gerðir sem ormar með kjaftana hvor á móti öðrum. Hringarnir,
ormabolirnir og pálmettustafirnir eru skreyttir með létt rissuðum
bogalínum. Bylgjuteinungurinn á framhliðinni er ólíkur þeim á bak-
hliðinni, en báðir byrja þeir í neðra horni til vinstri. Á framhliðinni
er í raun og veru ekki einn teinungur heldur öllu fremur tveir litlir
fléttaðir saman. Stönglarnir eru um 1.5 sm breiðir, flatir að ofan,
með innri útlínum. Allar greinar enda í undningum. Sumir hafa innst
þríflipað blað af rómanskri gerð. Hin ferhyrnda umgerð, sem alls
staðar umlykur útskornu fletina, er að nokkru leyti strikhefluð. —
Fremur laglegt verk, en skemmt af sliti.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Líklega frá 18. öld ofanverðri.)
5. Áletrun engin.