Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 86
90
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
smá „blö8um“ og „böndum“ milli þeirra á ská. Gæti eitthvað af þeim
verið höfðaletursstafir ? — Ekki sérlega fínt verk.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Nýlegar að sjá, varla eldri en frá því um
1870.)
5. Áletrun. Sjá hér að ofan.
6. L: R. Arpi keypti 1883, Uppsalir.
1. 38.865. Trafaöskjur úr furu, kringlóttar, lokplatan ofurlítið
kúpt, festar saman með trétöppum og tágum. Þverm. 26, h. 12.5.
2. Nokkrir af trétöppunum dottnir úr, og hafa naglar verið settir
í staðinn sums staðar. Nokkuð sprungnar. Fitugar á botninum. Ómál-
aðar. (Mynd ómerkt.)
3. Útskurður ofan á lokinu. Stór sexörmuð stjarna (sexblaða-
rós). Hver armur er skorinn niður með hliðunum, svo að hann verð-
ur ávalur að ofan, og eru þeir allir rúðustrikaðir, minna á greni-
köngla, en eru mjóir í báða enda. í hverjum þríhyrningi milli arm-
anna er samhverf mynd, frammjó lykkja og tveir undningar, inn-
skorið með fremur grófum línum. Nokkrar kílstungur eru yzt við
kantinn. Typpi hefur víst verið í miðjunni. — Einföld og góð niður-
röðun; vel gert.
4. Ártal ekkert. (MÞ: Virðist kunna að vera frá 18. öldinni ofan-
verðri.)
5. Áletrun innskorin innan á lokið.
6. L: Fil. kand. Rolf Arpi, Uppsölum, keypti, 8. 12. 1883.
8. Afbildningar, pl. 13, nr. 63.
1. 57419. öskjur úr furu, lokplata úr beyki, kringlóttar, festar
saman með trétöppum og tágum. (Ekki fitugar að innan.) Þverm.
um 13.5, h. um 8.
2. Hliðarnar sprungnar, fleiri trétappar dottnir úr. Ómálaðar.
15.X.Í.
3. Útskurður ofan á lokinu. Yzt er kílskurðarbekkur (laufaskurð-
ur) og innskornir hringar. Inni í þeim „bandstjarna", mynduð af
tveimur böndum lögðum í þríhyrninga, sem brugðnir eru saman.
Böndin eru 11-12 mm breið, með innri útlínum. Utan við stjörnuna
er innskorin lína samhliða ytri mörkum hennar og tungur með hol-
járnsstungum í. Á miðja stjörnuna er innskorið ártal. — Laglegt
verk.
4. Ártal: 1801.