Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 44
48
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
gat og merki eftir og leifar af einhvers konar hjörum. (Gæti þess
vegna kannske kallazt kistill.) L. 32.7, br. 16.4, h. (með loki) 14.5.
2. Mjög illa með farinn; ryðgaðir naglar eru hér og þar og marg-
ar flísar brotnar. Viðgerður með ánegldum sléttum listum. Smá-
sprungur. Ómálaður. 59.A.Í.
3. Útskurður á loki, hliðum og göflum. Á hliðunum eru höfða-
leturslínur meðfram köntunum að ofan og neðan. Teinunga- eða
bandaskraut er í bilinu á milli þeirra. Teinungurinn á framhliðinni
er lágt upphleyptur, gengur í bylgjum og hefur bogna grein í hverri
beygju. Stöngullinn er flatur að ofan með innskorinni miðlínu. Breitt
þverband með innskornu X-i eða kílskurði alls staðar, þar sem grein-
ar skiljast frá. Kílskurðarröð er líka á efri kanti hliðanna og við end-
ana eru krákustígsbekkir með kílskurði inni á milli. Lokinu er skipt
í reiti þvert yfir, hefur annars krákustígsbekki langs eftir köntun-
um bæði ofan á og eftir hliðunum, við endana (ofan á) og í einum
reitnum. í öðrum reitnum er innskorið Anno og ártal, í þeim þriðja
er teinungur (líkur þeim á framhliðinni) og í þeim fjórða nokkrir
upphleyptir, undarlegir bókstafir. Þar að auki eru í miðreitnum gár-
ar og ýmiss konar smábekkir langs eftir lokinu. — Mjög frumstætt
verk.
4. Ártal: 1779.
5. Áletrun: Anno 1779 A. (innskorið). Upphleyptu stafirnir eru
ef til vill H I(S?) D A. Höfðaleturslínurnar er erfitt að lesa.
6. L: R. Arpi, Uppsölum, keypti, 24. 10. 1887.
7. L: Upprunalega læsingin hefur verið úr tré, en af henni sjást
nú aðeins merki á lokinu.
MÞ:------Á hvorri hlið og hvorum gafli eru 2 línur, en verða ekki
s
lesnar svo að samhengi fáist: vinþ — æ(?)sav — irdaskal — giö(?)e
s
— lideæ(?) — efverdak — iadueigdusæ — liesu — anno —.
1. 56.563. Stokkur úr furu, festur saman með trétöppum. Efst á
hvorum gafli miðjum er uppstandari, sem lokið grípur um. Stokkur-
inn hefur tappalæsingu með ferköntuðum eikartöppum á lokinu, einn
þeirra er aflangur, hinir þrír minni. Er í lagi, en erfitt að opna hana.
Læsingarútbúnaðurinn er innan á lokinu, úr beyki. Handraði. L. 48.8,
br. 17.6, h. 23.2.
2. Nokkrar flísar brotnar af og dálítið gisinn, að öðru leyti
óskemmdur. Ómálaður. 73.A.b.