Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 67
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
71
1. 38.846. Prjónastokkur úr furu, nánast sívalningur (lokið hér
um bil flatt). Að innan eru hliðarnar beinar. Með renniloki. L. 26,
þverm. 3.2.
2. Óskemmdur, nema nokkrar smáflísar brotnar úr öðrum enda
loksins. Ómálaður. 74.A.ab.
3. Innskornir bekkir utan um stokkinn og yfir lokið. Alls staðar
innskornar samhliða línur, prýddar með holjárnsstungum á ýmsan
hátt og að nokkru með smákílskurðum.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun. Bekkurinn heldur ekki áfram út á enda loksins; aftan
við stendur með innskornum, latneskum stöfum: R E D A.
6. L: R. Arpi keypti 1883. Uppsalir. 8. 12.
1. 38.847. Prjónastokkur úr furu, eintrjáningur með renniloki,
ferkantaður þverskurður, með skáfleti á neðra kanti. L. 32.5, br. 4.2,
h. 3.9.
2. Stykki er brotið úr efst á annarri hliðinni, nýtt sett inn í stað-
inn. Flísað úr lokinu við „naglarfarið“. Ómálaður. ð.Á.ag.
3. Útskurður á öllum flötum. Á annarri hliðinni er bekkur, sem
minnir á „snúin bönd“. Meðfram efri kanti er kílskurðarbekkur. Á
hinni hliðinni er kílskurðarröð efst. Annars er þar fremur óreglu-
legur bekkur með innskornum vinkillínum með litlum hornréttum
skurðum og nokkur X og ferhyrningar með kílskurði og ferköntuð-
um skipaskurði í. Á göflunum er X með talsvert mörgum vinkillín-
um og f jórum kílstungum. Á botninum eru aðeins nokkrar innskornar
línur, sem skera hver aðra og mynda eins konar opna rúðustrikun.
Á lokinu er við báða enda sams konar X og á göflunum. Innan í hvoru
um sig er bandhnútur úr tveimur böndum með klauf í. 1 miðju hinn
vanalegi bekkur úr „snúnum böndum". — Fremur gróft skorið.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun engin.
6. L: Fil. kand. Rolf Arpi keypti 8. 12. 1883. Uppsalir.
8. Peasant Art, fig. 61.
1. 38.848. Prjónastokkur úr beyki, eintrjáningur með renniloki;
ferkantaður þverskurður, með afsneiddum köntum. L. 32.1, br. 3.1,
h. 3.
2. Tvær smásprungur. Blámálaður, málningin dálítið slitin.
73.A.y.