Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 100
104
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
1. 57417- Askur úr furu, með venjulegu lagi. H. 10.5, þvm. 17.2.
2. Nokkuð farinn að losna um samskeytin. Ómálaður. (Mynd
ómerkt.)
3. Handarhöldin með skorum. Það stærra hefur X ofan á. tJt-
skurður á lokinu. Á klofanum eru tveir kílskurðarbekkir, settir hvor
gagnvart öðrum, krákustígsbekkur og örlítill bekkur af snúnum
böndum. Líkur skurður er á upphækkuninni við tunguna að framan.
Að öðru leyti er niðurröðun með hringum, hverjum innan í öðrum,
sams konar bekkir og á aski nr. 56.558, einnig klukkublómin, sem
búta þá sundur. En yfir sexblaðarósinni á miðjunni er bekkur af ein-
földum snúnum böndum. (Líkur skurður er einnig á aski nr. 57.418.)
— Mjög nosturslegt og nákvæmt.
4. Ártal. Innskorið við tunguna 1866.
5. Áletrun engin.
6. L: Keyptur hjá Friðrik Möller, kaupm., Eskifirði, ísland. Kom
30. 1. 1888.
8. Afbildningar, pl. 14, nr. 66 og 67.
1. 57418. Askur úr furu, venjulegt lag. H. 13, þvm. 21.
2. Nokkuð laus um samskeytin. Sprunga á lokinu. Ómálaður.
74.1.ac.
3. Handarhöldin með skorum, og röð af innskornum X-um ofan
á því stærra. Að öðru leyti er útskurður á lokinu. Klofinn hefur tvo
bekki af mjög einföldum snúnum böndum og auk þess einn með rúð-
um (framkomnum milli tveggja kílskurðarraða) og sitt hvorum meg-
in bekki af örlitlum snúnum böndum. Þessir bekkir endurtaka sig á
upphækkuninni við tunguna að framan. Að öðru leyti er niðurröðun
með hringum, hverjum innan annars, með kílskurðarbekkj um og af
snúnum böndum. Á miðjunni er sexblaðarós með eins konar skipa-
skurði og innst rósettu með bekk af sams konar einföldum snúnum
böndum í kring. (Á innanverðu lokinu er innrissaður hringur með
nokkrum beinum línum, sem skera hver aðra.) — Reglulega fínt gert.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun engin.
6. L: Keyptur af F. Möller 1888, Eskifirði.
1. 59.208. Askur úr furu, venjulegt lag. H. 11.5, þvm. 17.8.
2. Nokkuð laus um samskeytin. Vantar stykki af efstu gjörð.
4.Á.k.