Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1957, Blaðsíða 113
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
117
5. Áletrun engin.
6. L: ísland. Dalasýsla. Keyptur hjá adj. A. Feddersen, Kaup-
mannahöfn, af A. Hazelius, 10. 10. 1887.
7. í L er ártalið lesið 1746, en ég held ekki, að það sé rétt.
MÞ les það einnig 1746.
1. 59.197. Snælda (snúður) úr furu, venjulegt lag, halinn hefur
skorur rétt við snúðinn og upphækkaðan hring dálítið neðar. L. um
28, þverm. 6.5.
2. Snúðurinn nokkuð slitinn. Ómáluð. 75.B.á.
3. Útskurður á snúðnum. Skálínubekkir ganga í hringum hver
innan í öðrum. Yzt eru tveir bekkir af innskornum krákustígslínum,
með þríhyrndum skipaskurði innan við hvern odda. Neðan á eru tveir
grunnt rissaðir hringar, hvor innan í öðrum, og innskorið H.
4. Ártal ekkert.
5. Áletrun engin.
6. L: ísland. Dalasýsla. Keypt hjá adj. A. Feddersen, Kaup-
mannahöfn, af A. Hazelius, 10. 10. 1887.
MÞ:-------Sviðinn í gatinu að neðan; hefur verið notaður fyrir
kertisstiku. Þráðarskorur eru innaní gatinu.------
ÞRÁÐARKEFLI
1. 56.565 a. Þráðarkefli (krókarefskefli) úr birki. Sívalt kefli,
þannig tiltelgt, að það verður tiltölulega mjótt, slétt kefli til að vinda
á; því er skipt í tvennt með upphækkaðri kringlu á miðjunni. Til end-
anna eru einnig gildari partar til skrauts. Sá stærsti líklega hand-
fang. L. (allt tekið með) um 21.5.
2. Óskemmt, lítur út fyrir að vera nýtt. Ómálað. 12.Z.V.
3. Miðkringlan er slétt á hliðunum með upphækkuðum miðparti
með innskornum skástrikum. Við annan endann er örlítið þykkari
kringla, körfulöguð, prýdd með röðum af smáskorum. Yzt á endann
er skorin lykkja, og í henni hangir í annarri lykkju önnur nokkru
hærri „karfa“ með þrjá „fætur“ og skreytt með innskornum línum
og smáskorum. Við hinn endann er aftur lítil kringla með smáskor-