Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Side 29
KUML ÚR HEIÐNUM SIÐ
33
ingjar hins heiðna manns hafi grafið bein hans upp og fært til
kirkju, eftir að kristni var komin á?
Haugféð er að sumu leyti athyglisvert. Fróðlegt er til dæmis að
fá þarna örvaroddana til viðbótar við þá fáu, sem fyrir eru, og
hestbroddurinn og snældusnúðurinn eru einnig góðra gjalda verðir.
Tilgangslaust er að gizka á, hvort meira hefur verið í kumlinu í
upphafi, en líklegt er það. Oft er merkasta haugféð í fremri enda
grafarinnar.
10. Ytra-Gar8shorn, Svarfaðardalshreppur, Eyjafjarðarsýsla.
8. 9. 1956 og 22. 8. 1958.
í Kumlum og haugfé er Ytra-Garðshorn meðal fundarstaða
(Kumlatal 69), en eftir að Kuml og haugfé kom út, kom í ljós, að enn
var margt ófundið á þessum stað. Nú er þó svo komið, að vart mun
þar fleira að finna, og er því sízt of snemmt að gera í heild grein
fyrir þessum kumlateig, sem er einn myndarlegasti sögualdargraf-
i'eitur, sem kunnur er hér á landi (10. mynd).
Kumlateigurinn er á allháu holti, sem Arnarholt heitir. Tak-
markast það að austan — eða öllu heldur suðaustan — af snar-
bröttum bakka, sem raunar er gamall bakki Svarfaðardalsár, þótt
hún hafi síðar lagzt þar frá, en rétt fyrir vestan holtið er mýrar-
sund, sem skilur það frá túnfætinum í Ytra-Garðshorni. Um það
mýrarsund liggur þjóðvegurinn. Frá kumlateignum eru um 300
m upp (vestur) að bænum í Ytra-Garðshorni. Á Arnarholti er mjög
fagurt um að litast og víðsýnt, livort sem er út eða fram eftir
dal, enda má svo að orði kveða, að staður þessi liggi mjög miðsvæðis
í sveitinni.
Vestan í Arnarholti er malargryfja, sem tekin hefur verið, þeg-
ar vegurinn var lagður fyrir alllöngu (Kuml og haugfé, bls. 118, 31.
mynd, hér 11. mynd). Árið 1952 voru tekin nokkur tannarför með
jarðýtu við þessa malargryfju, og varð þá vart nokkurra hross-
beina, sem ekki var hirt um að sinni. Rétt sunnan við malargryfj-
una hafði eitt sinn verið gerður kartöflugarður, og einnig þá höfðu
sézt hrossbein. Haustið 1953 fundu börn nokkur mannabein, sem
°ltið höfðu inn í gryfjuna frá jarðýtuförunum frá árinu áður, og
skömmu síðar fannst raftala í gryfjubarminum rétt hjá. Reyndist
þar vera kuml það, sem ég rannsakaði 1954 og grein er fyrir gerð
1 Kumlum og haugfé. Er það hér nefnt 1. kuml.
Sumarið 1955 fann Hjalti bóndi Haraldsson 2. og 3. kuml, og
3