Norðurljósið - 01.01.1972, Page 62

Norðurljósið - 01.01.1972, Page 62
62 NORÐURLJÓSIÐ syndir. En hvað sem því líöur, af spádómum í biblíunni má sjá, að heimurinn allur mun komast undir stjórn eins manns, guðlauss manns, er setur sig á móti og rís gegn öllu, sem heitir Guð eða helg- ur dómur. Það er ekki víst, að þess verði langt að bíða, að hann setjist að völdum. Atburðir reka hver annan og æ með meiri hraða nú á dögum. „Upp með hið lága, niður með hið háa,“ segir Drott- inn. Keisara hásæti og konunga stólar hafa veriö að hrynja á síðast- liðinni hálfri öld, eða rúmlega það. Alþýðan hefir víða tekið völdin, og aldagamlar tignarstöður þekkjast þar ekki lengur. Ef vestræn menning hrynur innan skamms, sem margt þykir benda til, þá er það vegna þess, að hún eins og kóngulóin sleit þráð- inn að ofan, samband sitt við Guð. Það, sem spámaðurinn Zefanía sagði um Jerúsalem, má nú segja um vestræna menningu: Hún er þverúðarfull og saurguð. Hún hlýðir engri áminningu. Hún treystir ekki Drottni og nálægir sig ekki Guði sínum. Þetta er heildarmynd- in, sem blasir við auganu. En við nokkrar sálir innan fjöldans má segja með orðum sama spámanns: „Leitið Drottins, allir þér hinir auðmjúku í landinu, þér sem breytiö eftir hans boðorðum. Ástund- ið réttlæti, ástundið auðmýkt; vera má, að þér verðið faldir á reiði- degi Drottins.“ Boðorð Guðs til allra manna á jörðu, sem lifa nú á dögum, er þetta: „Gerið iðrun, látið af öllum syndum og ranglæti, treystið Drottni Jesú Kristi og fáið nýtt líf frá honum og kraft til að lifa nýju líferni. Opnið hjartað fyrir honum, bjóðið Jesú inn að ganga og taka sér bústað þar. Ástundið réttlæti, ástundið kærleika, og „verið ávallt vakandi og biðjandi, til þess að þér megnið að umflýja allt þetta, sem fram mun koma, og að standast frammi fyrir Manns- syninum.“ Þetta er ráðlegging Drottins Jesú sjálfs. „Land, land, land, heyr orð Drottins,“ sagði spámaðurinn forðum. Hann kallar þau til vor í dag. Hafi þökk þeir, sem hlýddu þessu erindi, og Guð blessi alla þá, sem gefa gaum orðum frelsarans. Lifið heil. DAGLEGT LJÓS, ritningargreinar til daglegs lestrar, fæst í Reykjavík hjá Bókaverzl- un Sigfúsar Eymundssonar og hjá frú Soffíu Sveinslóttur, Mið- túni 26. í Keflavík hjá frú Sigríði Sigurbjörnsdóttur, Skólavegi 3. Hér á Akureyri hjá afgreiðslu Norðurljóssins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.