Réttur - 01.01.1961, Page 41
BJÖRN JÓNSSON:
Skipbrot
„viðreisnarinnar”
Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksins boðaði „við-
reisn” sína fyrir rösku ári síðan sögðu talsmenn hennar, utan þings
og innan, að megintilgangur hennar væri sá „að skapa framleiðsl-
störfum og viðskiptalífi landsmanna traustari, varanlegri og heil-
brigðari grundvöll en atvinnuvegirnir hefðu átt við að búa undan-
farin ár og tryggja þannig aukna þjóðarframleiðslu og batnandi
lífskjör."
Við sósíalistar og aðrir Alþýðubandalagsmenn vorum alveg
öndverðrar skoðunar bæði um tilgang og afleiðingar „viðreisnar"-
aðgerðanna. Við sögðum fyrir að afleiðingar hinnar nýju stjórnar-
stefnu yrðu ekki vaxandi þjóðarframleiðsla heldur samdráttur
hennar, ekki batnandi lífskjör heldur síversnandi afkomu vinnu-
stéttanna, ekki batnandi hagur þjóðarinnar gagnvart öðrum þjóð-
um heldur hrakandi gjaldeyrisstaða, ekki atvinnuöryggi heldur
minnkandi atvinna og jafnvel atvinnuleysi.
Nú er rúmt ár liðið frá því er „viðreisnin" var knúin fram á
Alþingi og því unnt að dæma afleiðingar hennar útfrá staðreynd-
um í ýmsum greinum, þar sem áður varð að ráða af Iíkum. Þótt
enn skorti nokkuð á, að nákvæmar upplýsingar séu fyrir
hendi um allt, sem máli skiptir varðandi þróun efnahagsmálanna
á fyrsta „viðreisnar"-árinu, má þó ætla að við athugun meginatriða,
sem fyrir Iiggja, geti heildarmyndin af því, hvert „viðreisnar-að-
gerðirnar hafa leitt og eru að leiða þjóðfélagið orðið sæmilega
skýr.