Réttur - 01.01.1961, Side 147
R É T T U B
147
sem hún beitir til þess að
varna því, að sósíalisminn megi
ná til fjöldans. Leggja verður
enn aukið kapp á að skýra
hugmyndir sósíalismans fyrir
fjöldanum, þroska verklýðs-
stéttina í anda byltingarinnar,
glæða byltingarsinnaða stétt-
arvitund hennar og sýna öllu
vinnandi fólki fram á yfir-
burði sósíalismans með því að
skírskota til reynslunnar af
sósíalska heimskerfinu, jafn-
fram því að leitazt sé við að
gera þess sem ljósasta grein,
hvílíkan ávinning sósíalisminn
muni færa verkamönnum,
bændum og öðrum stéttum og
stigum sérhvers lands.
Kommúnisminn léttir af
mönnum styrjaldarkvíðanum
og færir þeim ævarandi frið,
leysir þá undan áþján og arð-
ráni heimsvaldasinna og hörm-
ungum atvinnuleysis og ör-
birgðar, veitir þeim almenna
hagsæld og ákjósanlega lífsaf-
komu og tekur frá þeim ótt-
ann við kreppurnar í efnahags-
lífinu, tryggir hraðan vöxt
framleiðsluaflanna öllu þjóðfé-
laginu til hags og heilla, aflétt-
ir kúgun persónuleikans undir
ok fégróðahyggj unnar, skapar
hverjum manni skilyrði al-
hliða andlegs þroska og fyllstu
tiltök þess, að hæfileikar hvers
eins fái notið sín, og kemur til
leiðar ótakmörkuðum þjóðfé-
lagsframförum á sviði vísinda
og menningar. Öllum stigum
þjóðfélagsins að undanteknum
tiltölulega smáum hópi arð-
ræningja hlýtur sigur hins
nýja þjóðskipulags að vera á-
vinningur. Þessi sannindi verð-
ur að leiða milljónum manna
í löndum auðvaldsins fyrir
sjónir.
VI.
■ Hin kommúnistíska hreyfing
sæknr hvarvetna fram án afláts
Heimshreyfing kommúnism-
ans er orðin mesta áhrifavald
vorra tíma, mikilvægasti þátt-
ur þjóðfélagsframvindunnar.
Hin kommúníska hreyfing
sækir fram án afláts, treystir
einingu sína og stælist í harðri
baráttu við hið heimsvalda-
sinnaða afturhald fyrir hags-
munum verkalýðsins og allra
vinnandi stétta, fyrir friði,
þjóðfrelsi, lýðræði og sósíal-
isma.
Kommúnistaflokkar eru nú
starfandi í 87 löndum heims og
félagatala þeirra alls rúmlega
36 milljónir. Þetta er vissulega
glæsilegur árangur marxisma
og lenínisma, voldugur sigur
verklýðsstéttarinnar. Skoðana-
bræður á vettvangi marxism-
ans bindast samtökum í löndum
þeim, er brotizt hafa úr bönd-