Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1948, Qupperneq 34
slíku tali lengi vel, en eitt sinn, er henni leiddist frekja
hirðmeyjanna, segja þær að hún hafi brosað og mælt
á þessa leið: Hversu má það ske? Þegar konungur kem-
ur til mín á kvöldin, gerir hann ekki annað en kyssa
á höndina á mér og bjóða mér góða nótt. Mun það mála
sannast, að Hinrik hafi ekki snert Önnu mannshendi
þann tíma, sem þau voru samvistum, svo var hann
reiður blekkingum ráðgjafanna. Voru þessar blekking-
ar upphaf til ónáðar og falls Thomasar Cromwell.
Þegar rofaði til á meginlandinu, sendi Hinrik menn
til hertogans af Cleve, til samninga um skilnað og bæt-
ur fyrir spjöll á dóttur hans, sem engin virðast hafa
verið. Greiddi Hinrik hertoganum miklar bætur. Skildu
þau Anna og Hinrik í vinsemd. Hún fékk til éignar
miklar jarðeignir og árgjald.
Katrln Howard.
Þegar Hinrik var skilinn við Önnu Cleve, var enn
sem fyrr þörf á því, að tryggja Tudorættinni betur
ríkiserfðirnar, eða öllu heldur meiri. Konungsson var
mesti aumingi til heilsunnar, enda varð hann ekki lang-
lífur, ekki nema 17 ára, og hafði þá ríkt í 6 ár.
Gnauðuðu nú ráðgjafarnir enn við konung um að
kvænast á ný. En bæði var það, að konungur tók að
eldast, og að allt, sem laut að ráðahag hans og Önnu
Cleve, voru honum hin mestu vonbrigði, eins og áður
er sagt. Hinrik var í þetta sinn ófúsari til nýs kvon-
fangs en nokkru sinni fyrr, en hann sá, eigi síður en
ráðgjafar hans, að mótmælendatrú í Englandi yrði
svo bezt borgið, að hans afkomendur tækju við völd-
um eftir hann. Lét hann tilleiðast, að ganga enn á ný
í hjónaband. Það skilyrði setti hann þó ráðgjöfum sín-
um, sem svipast áttu eftir konuefninu, að drottningar-
efnið yrði ekki fengið frá útlöndum. Ennfremur setti
hann það upp, að hann fengi að sjá og kynnast konu-
efninu áður en hann kvæntist. Mundi hann vel blekk-
ingar ráðgjafa síns, Thomasar Cromwells, og þeirra
annarra, sem gyllt höfðu Önnu fyrir honum, meðal
annars með falsmynd frá Holbein. Varð að leita konu-
efnis í Englandi, og lögðu ráðgjafarnir til, að Hinrik
gengi að eiga Katrínu Howard. Var hún af voldugum,
enskum aðaisættum. Kvæntist Hinrik henni.
En nú endurtók sig sagan um Önnu Boleyn. Katrín
Howard var ung, en konungur við aldur. Gjálífi var
mikið við ensku hirðina, eins og þá var títt við kon-
ungahirðir álfunnar. Var drottning sjálf fremst í flokki
um allan gleðskap, en konungur jafnan önnum kafinn
við stjórnarstörf. Lét hann sig stjórn landsins mest
skipta hin síðari ár ævi sinnar, bæði í stóru og smáu.
Lét sig og eigi síðar varða stjórnmál álfunnar en
Englands. Það varð brátt ljóst, að drottning var létt-
úðug í meira lagi. Kvisaðist það, að hún mundi eigi
hafa verið hrein mey, er hún giftist Hinriki, og að
sumir ráðgjafanna hefðu um það vitað. Loks rak að
því, að það mátti heita á almanna orði við hirðina, að
drottning væri konungi ótrú. Gátu ráðgjafarnir ekki
setið lengur auðum höndum. Eitt sinn, er konungur og
drottning voru að veizlu á höfðingjasetri nokkru í
Englandi, settu ráðgjafarnir út verði til þess að komast
að hinu sanna um framferði drottningar. Er skemmst
frá að segja, að njósnarmenn stóðu hirðmann einn í
rúmi drottningar um miðja nótt, og hana hjá honum.
Var drottning síðan handtekin og rannsókn hafin gegn
henni og friðlum hennar mörgum. Sannaðist á drottn-
ingu, að hún hafði tekið fram hjá konungi með mörg-
um hirðmönnum, jafnvel með bróður sínum. Er mál
hennar eitthvert ógeðslegasta kynferðismál, sem sögur
fara af, og ljóst dæmi um tíðarandann. Var víst eng-
inn landsmanna í vafa um, að drottning hefði, með
framferði sínu, fyrirgjört lífinu, enda var hún dæmd
til dauða og hálshöggvin.
Katrín Parr.
Það er væntanlega ljóst, að Hinrik hafi verið mesti
ólánsmaður um flest hjónabönd sín. En þótt hann hefði
skilið við tvær konur og tvær þeirra verið hálshöggn-
ar, og hann orðið ekkjumaður einu sinni af eðlilegum
ástæðum, þá var þó enn eigi tryggilega séð fyrir rík-
iserfðunum. Var nú og fyrir víst vitað, að Játvarður
konungsson mundi jafnan verða heilsulaus maður. End-
urtekur nú sagan sig, um eggjanir ráðgjafanna um
kvonfang á ný. Hinrik var gersamlega fráhverfur öll-
um kvonbænum, en lét þó tilleiðast sem fyrr, að taka
sér konu á ný. Var betur vandað til þessa hjónabands
en þess næsta á undan. Var Hinriki ráðlagt að eiga
Katrínu Parr, ekkju Latimer lávarðar, sem hafði á sér
mesta siðgæðisorð. Hafði hún átt börn með fyrra manni
sínum. Kvæntist Hinrik henni.
Með Hinriki og þessari síðustu og sjöttu konu hans
fór hið bezta, en ekki varð þeim barna auðið. En er
það þótti auðsætt, var tekið til þeirra ráða að breyta
erfðalögum krúnunnar. 1 hinum nýju erfðalögum var
ákveðið, að Játvarður og hans arfar skyldu erfa krún-
una að Hinriki látnum. Að Játvarði látnum og hans
afkomendum, skyldi ríkið falla undir Maríu dóttur
Katrínar frá Aragóníu, en að þeim lið þrotnum til
Elísabetar dóttur Önnu Boleyn og hennar arfa. Væru
öll börn Hinriks iátin og þeirra arfar, skyldi Eng-
landskrúna hverfa til afkomenda Margrétar systur Hin-
riks, sem gift hafði verið Skotakonungi.
Yfirlit.
Það er væntanlega ljóst af því, sem hér hefur verið
sagt frá hjónaböndum Hinriks VIII. að hann hafi ekki
verið neitt sérstaklega kvenhollur. Þegar frá er talinn
kunningsskapur hans og Önnu Boleyn, áður en þau
gengu að eigast, þá virðast hvatir hans sjálfs engu
hafa ráðið um kvonbænir hans. Ráðgjafar konungs og
stjórnmálaviðhorf álfunnar réðu mestu um öll kvon-
föng hans, einkum þó að tryggja ríkinu löglegan rík-
isarfa eftir daga Hinriks, svo innanlandsfriður mætti
haldast.
Hvernig stendur á því, að jafn merkur og mikil-
virkur konungur hefur hlotið að eftirmælum slíkt kven-
semis- og grimmdarorð, sem sagan ber vitni um og
almenningsálitið enn í dag? Þeir, sem skyggnast og
skyggnzt hafa niður í sögu Hinriks, hafa komizt að
raun um að hann var sjálfur mjög ófús á að kvong-
ast. Má segja, að hann hafi gengið nauðugur að eiga
fimm af sex konum sínum. Hann hafði jafnvel svo
mikla óbeit á hjúskaparjarmi ráðgjafanna, að þeir
beittu hann stundum brögðum og ginntu hann í hjóna-
VÍKINGUR
326