Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1948, Page 58
Frh. af bls. 3U7.
um hringgeirum, sem hvor er 120 gráður, og
hljóta því að verða tveir 60 gráðu geirar, eða
horn, þar sem vitinn er þögull, eða merkin ónot-
hæf til staðarákvarðana. í öðru lagi: Til að gera
staðarákvörðun í einni svipan, þarf a. m. k.
tvær staðarlínur, (miðanir), sem skerast í hag-
kvæmu horni, helzt ekki undir 45 gráðum (né
yfir 135 gráðum) því nær 90 gráðum því betra.
En frá einum Consol-vita er ekki hægt að fá
nema eina staðarlínu í einu. Einn Consol-viti
getur því aldrei fullnægt hlutverki allra vita á
íslandi.
Þá segir H. H., að Þjóðverjum hafi engin
tálmun verið að því þótt slökkt væri á ljósvitum
og þaggað niður í radíóvitum, því skip þeirra
og flugvélar hafi notað Consol aðferðina til stað-
arákvarðana. Ekki hef ég séð neinar skýrslur
um siglingar og flug Þjóðverja á stríðsárunum,
og veit því ekki hve miklum töfum og tjóni það
olli, að Ijós- og radíóvitar voru óvirkir, en ólík-
legt þykir mér að Consol stöðvar þeirra hafi
komið að sömu eða jafnvel betri notum en Ijós-
og radíóvitarnir. Þá má einnig benda á, að siglt
var óhikað með ströndum Englands öll stríðs-
árin, þótt slökkt væri á mörgum vitum þar, og
starfstími og sjónarlengd annara takmarkað að
miklum mun, og að mestu þaggað niður í radíó-
vitunum, og það án þess að nota Consol.
Þá tekur H. H. sér fyrir hendur að gera sam-
anburð á Loran, Decca og Consol aðferðunum
við staðarákvörðun, og kemst að þeirri niður-
stöðu, að ekki sé annað fyrir okkur (íslendinga)
en að ákveða hvort við viljum kosta miklu eða
litlu fé til að fá jafn góðan árangur, og þá verð-
ur Consol auðvitað fyrir valinu. En það er ekki
víst, og raunar mjög ólíklegt, að allir verði sam-
mála H. H. um það, að Consol gefi jafn góðar
staðarákvarðanir og Loran eða Decca. Það er
rétt, að Loran og Decca aðferðirnar útheimta
alldýr og margbrotin tæki um borð í skipunum,
en Consol aðeins venjulegan útvarpsmóttakara
með „beat oscillator", (en hitt er ekki rétt, að
Loran aðferðin byggist á því, að mæla hraða
hljóðsendinga, heldur á að mæla tímamismun á
móttöku merkja frá tveim sendistöðvum, en það
kemur raunar ekki þessu máli við).
Nú kemur langur kafli þar sem Consol að-
ferðinni er lýst í stórum dráttum, og greinarhöf-
undur endurtekur fjórum sinnum, að staðar-
ákvarðanir þessar séu nákvæmai’, en segir einn-
ig, að skekkjur í miðun séu í 50 tilfellum af
hundraði innan við 0,2 gráðu, í 95 af hundraði
innan við 0,8 gráður og mesta skekkja við verstu
aðstöðu hafi reynzt 5 gráður.
Um nákvæmni þessarar aðferðar vil ég leyfa
mér að tilfæra tvenn ummæli. I danskri sigl-
ingafræði útgefinni 1947 segir svo: „Nöjaktig-
heden af de ved dette System bestemte Sted-
linier afhænger af hvor i Feltet man befinder
sig, den er störst ved Feltets Midterstraale og
aftager mod Sektorerne U og W (60 gráðu geir-
arnir), i hvilke Systemet ikke kan benyttes.
Nöjaktigheden er endvidere störst þaa Afstande
mellem 350 og 450 sm. og aftager veð större og
mindre Afstande, paa Afstande under 25 sm.
kan Systemet ikke anvendes. Om Natten er Paa-
lideligheden betydelig nedsat“.
I „Admirality Notice to Mariners“ útgefnum
í janúar 1948 segir m. a. svo um nákvæmni
Consol miðana: „The accuracy obtained varies
Avith the skip’s position relative to the station.
In the best areas the probable error has been
found to be about Yr, degree by day and from
x/> to 1 degree by night“.
Það er eftirtektarvert, að dönsku siglinga-
fræðinni ber ekki saman við upplýsingar H. H.
um nákvæmnina á 350 —450 sjómílna vega-
lengd, siglingafræðin segir hana vera mesta þar,
en H. H. minnsta. Skal ég ekki leggja dóm á,
hver hefir réttast fyrir sér í því efni. Að öðru
leyti ber þessum þrem ummælum að mestu sam-
an, og virðist mega draga af þeim þá ályktun, að
nákvæmni miðananna sé mest í miðjum geiran-
um, skekkjur þar Vs—% gráða á daginn, en
Vs—1 gráða á nóttunni. Ennfremur að ná-
kvæmnin fari minnkandi eftir því sem nær dreg-
ur útjöðrum geirans og mestu skekkjur, sem
fundizt hafa við verstu aðstöðu (en það mun
þá sennilega vera á nóttunni og í jöðrunum),
hafi reynzt 5 gráður.
Er nú rétt að athuga, hvað þessar litlu mið-
anaskekkjur valda mikilli ónákvæmni í staðar-
ákvörðun við mismunandi vegalengdir frá sendi-
stöðinni.
Ekki veit ég á hvaða svæðum við landið H. H.
ætlar fyrirhuguðum Consol vita að gera mest
gagn, en það þarf, eins og ég tók fram hér að
framan, að vera Ljóst áður en vitanum er ákveð-
inn staður. En líklegt þykir mér að skip og bát-
ar á svæðinu frá Vestmannaeyjum, vestur fyrir
Reykjanes og norður á Hala, mundu helzt teljast
hafa þörf fyrir vitann, og væri hann þá að mínu
áliti bezt settur á Norðaustur- eða Austurlandi,
t. d. nálægt útvarpsstöðinni á Eiðum, og þannig
settur, að miðja annars virka geirans lægi út
yfir Faxaflóa sunnanverðan. (Það skal játað,
að væri vitinn á þessum stað, kæmi ekki nema
annar geirinn að notum fyrir fiskiskip við Is-
land, og vera má að hálendið hafi áhrif á lang-
drægni vitans og áreiðanleik miðananna). Frá
Eiðum, þvert vestur yfir landið, út á Faxaflóa,
350
V I K I N □ U R