Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1962, Blaðsíða 15

Andvari - 01.07.1962, Blaðsíða 15
ANDVARl EINAR ARNÓRSSON 125 Sjáll eignuðust þau Einar og Sigríður 6 börn: frú Ingibjörgu, Guðrúnu, sem lézt 1928, frú Aslaugu, sem lézt 1947, frú Asgerði, frú Hrafnhildi og Loga yfir- sakadómara í Reykjavík. Frú Sigríður andaðist 11. ágúst 1960. Hún var ágæt liúsmóðir og myndarkona í hvívetna, en heilsuveil mjög hin síðari ár. Einar var með afbrigðum umhyggjusamur heimilisfaðir og heimiliskær. Hann var góður taflmaður og stundaði þá íþrótt lengi. Hann hafði gaman af að spila við kunningja sína en frábitinn allri óreglu og lítt hneigður til veizlu- fagnaðar, þótt hann drykki glas af víni, ef svo bar undir. Einar þótti hygginn fjármálamaður og komst til sæmilegra efna. Sagði liann mér eitt sinn, er við röbbuðum saman að aflokinni opinberri veizlu, að hann teldi það hafa háð sér lengi vel, að hann hefði viljað forðast að verða aftur svo örsnauður sem hann var í æsku. Má og nærri geta, að Einar hefur olt þurft að leggja hart að sér, ckki sízt á æskuárum, er hann varð einn og óstuddur að ryðja sér braut. E. t. v. minntist bann þess með því að spara ekkert til menningar og þroska barna sinna, utanlands og innan. Einar var meðalmaður á hæð, grannvaxinn, andlitsdrættir austrænir og nokkur dulúð yfir svipnum. Þótt eigi væri hann fyrirferðarmikill, hlutu allir að veita honum eftirtekt, þar sem hann kom á mannamót. Ekki var hann mann- blendinn að jafnaði, en gat verið skrafhreifinn og manna skemmtilegastur, stundum kaldhæðinn í tilsvörum. Hann var ekki allra vinur en manna trygg- astur vinurn sínum. Engan kennara hefi ég haft, sem betur kunni að gera viðfangsefnið lifandi, enda tók hann gjarnan dæmi máli sínu til skýringar. Fyrir kom, að gráglettni gætti í viðbrögðum hans, ef honum þótti grunnfærnislega svarað. Einskisvert fjas og bollaleggingar um það, sem ekki verður um vitað, geðjaðist honum lítt. Hann var því ekki að allra skapi, þó að enginn efaðist um yfirburði hans. Einar var um margt yfirburðamaður. Afköst hans eru með ólíkindum. Hann skrifaði merk sagnfræðirit, endurnýjaði íslenzkt lagamál, lagði grundvöll að sumum greinum íslenzkrar lögfræði, sarndi umfangsmikla lagabálka, kenndi heilli kynslóð lögfræði, var nær hálfan mannsaldur í æðsta dómstóli þjóðar- innar og flutti á elliárum sum umfangsmcstu mál fyrir hæstarétti. Samhliða þessu sinnti hann lengst af margháttuðum framkvæmdastörfum, sat um skeið á Alþingi, var tvívegis ráðherra og átti þá flestum fremur þátt í að móta þá atburði, sem leiddu til fulls sjálfstæðis þjóðarinnar. Sá, sem allt þetta afrekaði, hefur sjaldan slegið slöku við. Einar Amórsson gekk til starfa að morgni hins 29. marz 1955 eins og vandi hans var, en varð bráðkvaddur heima hjá sér þá um hádegisbil. Hann starfaði til síðustu stundar, og mun starfa hans lengi sjá stað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.