Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1962, Blaðsíða 82

Andvari - 01.07.1962, Blaðsíða 82
192 SIGUHÐUK SIGURMUNDSSON ANDVAM Árna biskupi lagurt vitni í öllum mál- um, scm konung varða og ekki snerta bréfritarann sjálfan. Því næst segir: „Ilerra í orlofi að tala, get eg flestum verða eigi allhægt að stjórna ríkinu, nema þeim, sem hann leggur hendur í höfuð á sem hann vill, er svo mikið ríki hans á landinu, að yðrir menn skulu varla svo við Iiorfa, sem þeir þykkjast mannan til hafa eður skaplyndi. Þingi voru réðu í sumar Ilrafn og biskup, höfðu skammt og meðallagi skilvíst, að því að sumum þótti. Lögsögumaður var ógreiður og skaut flestum málum undir biskups dóm og annara þeirra er sýndist. Af lögréttu- mönnum nýttist lítið.“ Bréfkafli þessi sver sig í ætt við ræður Þorvarðar í Þorgils- sögu um sérstætt orðaval, skýra og ljósa hugsun. Auk þess hefur það á vorri öld reynzt að vera elzta sönnunargagn fyrir ríkisréttindum Islands eftir Gamla sátt- mála.1) Af þessum stuttu bréfköflum má glöggt sjá, hverníg stjórn og réttarfari á alþingi var háttað. í landinu var rikjandi millibilsástand um lög og rétt. Þjóðveldis- lögin eru úr gildi numin og ný lögbók, ófullkomin frumsmíð, komin í þeirra stað. Á þinginu ræður svo Árni biskup raun- verulega einn öllu og það eitt lög, sem honum þóknast að kalla. Frásögn Árna- sögu biskups um deilumál þeirra Þorvarð- ar er merkileg. Hún bregður Ijósi yfir það, hve heimildarlaust Árni biskup réðst inn á verksvið leikmanna. Og einnig það, þótt sagan sé eins og Þorgilssaga hlut- dræg í málflutningi, má þó öruggt telja, að Þorvarður hafi verið fyrsti valdsmað- urinn, sem spyrnti alvarlega gegn yfir- gangi Árna biskups. Það vill nú svo til, að til eru hans eigin orð, sem vitna um skoðanir hans í þessum málum og sem hann mun hafa framfylgt til hins ýtrasta. Árið 1255 fórust Þorvarði svo orð í við- 1) Bjöm Þórðarson: Síðasti goðinn. skiptum sínum við Heinrek biskup, skömmu eftir Þverárbardaga: ,,Allt það, er vér höfum brotið við heilaga kirkju og raskað guðs rétti, viljum vér leggja í yðvarn dóm. En þær sakir, sem gerst hafa millum vor og annara leikmanna, skiljum vér undan yðrum dómi.“ Valdatímabili Þorvarðar var nú að þessu sinni brátt lokið. Idafði hann að eigin sögn ekki skaplyndi til þess að vera við völd og koma ekki fram lögum fyrir ofríki biskups. I annan stað hafði Árni biskup látið svo um mælt í bréfi til kon- ungs, að hann kæmi vel skapi sinu við alla handgengna menn, utan við Þor- varð, þótt engin persónuleg sakferli væru þeirra í milli. Ennfremur lét hann uppi þá skoðun, að hann teldi Hrafn Oddsson bezt fallinn íslenzkra manna að ráða öllu Islandi. Út af þessum málum hafa þeir farið utan allir og það á sama skipi, Hrafn, Sturla og Þorvarður haustið 1277. En skipið braut við Færeyjar. Urðu þeir þar kyrrsettir um veturinn, en komust til Noregs næsta vor. Sumarið 1279 komu þeir svo út báðir, Hrafn og Þorvarður, herraðir af konungi. Magnús konungur hafði þá gert að vilja Árna biskups og gert Idrafn merkismann sinn og hirð- stjóra á íslandi. Einnig kom út Ásgrímur Þorsteinsson og hafði nú fengið sýslu fyrir sunnan heiðar, sem Þorvarður hafði áður Iiaft. Ekki verður með vissu vitað hvar Þorvarður hcfur dvalið frá því hann kom út og fram á sumar 1281. Sennileg- ast er, að hann hafi þó verið á Austfjörð- um. Ekki er vitað annað, en hann hafi haidið þar hinu forna mannaforræði ævi- langt. Sumarið 1280 komu út Jón nokkur Einarsson og Loðinn leppur með nýja lögbók, sem lögtekin var á alþingi sum- arið eftir og hlaut nafnið Jónsbók. Deila reis milli þeirra Loðins og Árna biskups út af nokkrum atriðum lögbókarinnar. Var Þorvarður þá einn þeirra, sem miðl-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.