Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1962, Page 37

Andvari - 01.07.1962, Page 37
ANDVARI STRÍÐ 147 hvern tíma dottið úr honum. Já, dengsi, þú sérð það er fleira hægt að gera sér til gamans í fjallinu en skjóta, þó það sé kannski aðalerindið.“ Og eru nú staddir á gilbarmi, fyrir fótum þeirra ristir grunnt gil sig niður í gegnum rauða lyngflákana, og þarna er rjúpa, í barminum hinum megin. „Svona þá, drengur, nú á magann, þama er veiðin,“ hvískrar maðurinn, og hopar tvö skref til baka, viðbúinn sjálfur með tvíhleypuna, ef það skyldi geiga hjá viðvaningnum. „Bara rólegur, ekkert fát,“ hvískrar maðurinn meðan drengurinn krýpur í lyngið, og drengurinn endurtekur með sjálfum sér: „Bara rólegur, ekkert fát“. Heitur vangi hans nú við kalt skeftið, vísifingur hans krepptur á gikknum, nreðan kornið fremst á hlaupinu leitar jafnvægis milli sigtisraufarinnar efst á hlaupinu og hvíta depilsins hinum megin við gilið: Skot. „Ekki hitt," tautar drengurinn skömmustulegur: rjúpan ekki lengur á sínum stað, heldur flýgur með ógnar vængjaslætti beint upp í loftið. „Jú,“ sagði maðurinn, „sérðu ekki hún hengir hausinn?“ Og er allt í einu hætt að berja vængjunum í loftið og farin að detta. „Eg sá hún var dauð þegar hún flaug upp,“ sagði maðurinn, „rjúpur og hænsni gera þetta stundum. Þú átt eftir að verða bezta skyttan í þessu fjalli, dengsi." Drengurinn sótti rjúpuna ofan í gilið, síðan batt maðurinn snærisspotta um lappirnar á henni, bjó til lykkju á snærið og smeygði henni yfir öxl drengsins. „Væn rjúpa, ekki undir fimm hundruð og þrjátíu grömmum, býst ég við,“ sagði hann, „en þig munar ekkert um hana, allir vilja bera sína eigin veiði.“ Þeir reikuðu enn lengi urn fjallið, þangað til fór að rökkva, það var veður- hljóð í skörðunum og dimmt til loftsins í norðri, kannski var hann að færa í sig snjó. Drengurinn loks tekinn að lýjast, riffillinn þungur og rjúpan seig í, nú fyrst tók hann eftir því að blóð hafði dropið úr nefi hennar og atað buxurnar hans, en það gerði víst ekkert til: faðir hans kom venjulega blóðugur heim úr fjallinu. Þeir voru nú staddir á hjöllunum utan við bæinn, niðrundir jafnsléttu. Skammt fyrir neðan þá skyggði í löngu lágu klettabríkina, þar sem hjallarnir enduðu, og enn neðar — niðri á jafnsléttu — grillti í veginn sem lá út að Stað og allra hinna bæjanna á þeim slóðum, héðan að sjá rann vegurinn og kletta- brúnin nærri því sarnan í eitt. Allt í einu sáu þeir svörtum fugli bregða fyrir í hálfrökkrinu, hrafni, hann lyfti sér sem snöggvast upp fyrir klettabrúnina, eins og hann hefði verið styggður upp af náttbóli sínu þar, fór síðan aftur í hvarf.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.