Andvari - 01.07.1962, Síða 39
Þú og samfélagið
FORMÁLI
Erindin þrjú, sem prentuð eru hér á eftir, voru flutt á landsfundum Lands-
sambands íslenzkra barnaverndarfé 1 aga. Efnisval stóð höfundunum frjálst, og í
fljótu bragði virðist hver þeirra standa á sinni sjónarhæð og líta á þau vandamál
ein, sem þaðan blasa bezt við augurn. Dýpra skoðað, er viðfangsefni þeirra þó
eitt og hið sarna: maðurinn og menningarvandi hans. Sú ráðgáta er ekki ný.
Mannkynið hefir glímt við liana, síðan rnenn tóku fyrst að liugleiða þroska-
megund og þroskatálmanir manneðlisins, gera sér grein fyrir andstæðum þess
og fyrir tvíhverfð þeirrar menningar, sem af því sprettur. Hún verður naumast
ráðin til fullrar hlítar. Þess vegna hirtist hún ávallt að nýju fyrir sjónum hverrar
kynslóðar, verður höfuðvandamál hvers tíma, markar lífsviðhorf manna og ræður
að verulegu leyti andlegum og siðgæðislegum þroska. Við þá ráðgátu verður að
fást hver sú kynslóð, senr ber fyrir hrjósti uppeldi hinnar næstu; í viðfangi við
hana markar uppvaxandi kynslóð viðhorf sín og stefnu.
Því að maðurinn er ekki kyrrstöðuvera. Þróunarviðleitni og þróunarhæfni
eru honum áskapaðar. Elver kynslóð leggur sinn skerf til framvindu menning-
arinnar — mikinn, lítinn, giftusamlegan, örlagaþrunginn, háskalegan, eftir því
sem auðna leyfir —, bregzt við nýjurn vanda og setur sér nýtt keppimark. En
framvindan greiðir ekki aðeins úr vanda, hún skapar einnig vandamál. Þess
vegna gengur menningarþróunin ekki átakalaust, eins og lífrænn vöxtur. í henni
sviptast á andstæð öfl, og fyrr en varir hefur hún lent út í öfgum og kreppu.
Augljósastur verður okkur þó menningarvandi mannkynsins, ef við íhugum
þá arfleifð, sem hver hrörnandi kynslóð skilar hinni næstu. Á henni hvílir mörg
kvöð. Að sumu leyti er hún rangfenginn auður, að öðru leyti er hún föst í
áhættusömum fyrirtækjum. Þau örlög eru liverri kynslóð búin, að hverfa af
vettvangi frá hálfnuðunr leik en eftirláta öðrum framhald og fullkomnun við-
leitni sinnar. Því er sú spuming jafnan áleitin á hug foreldra, hvemig næsta
kynslóð reynist vanda sínum vaxin, hvemig hún muni meta og ávaxta okkar
skerf og hvemig við húurn hana bezt undir hlutverk sitt.
Bamavernd er því ekkert einkamál þess félagsskapar, sem kennir sig við
hana og hafði forgöngu um flutning nefndra erinda. Þvert á móti: Barnavernd