Andvari

Årgang

Andvari - 01.07.1962, Side 107

Andvari - 01.07.1962, Side 107
ÓLAFUR JÓNSSON: Islenzk sagnagerð 1961 Ásta Sigurðardóttir: Sunnudagskvöld til mánu- dagsmorguns. Helgafell, Reykjavík 1961. Gísli Kolbeinsson: Rauði kötturinn. Skáldsaga. ísafoldarprentsmiðja h.f., Reykjavík 1961. Guðbergur Bergsson: Músin sem læðist. Skáld- saga. Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavík 1961. Guðmundur Dantelsson: Sonur minn Sinfjötli. Skáldsaga. ísafoldarprentsmiðja h.f., Reykja- vík 1961. Guðmundur Gtslason Hagaltn: Töfrar draums- ins. Sögukorn um ástir og lífsdraum karls og konu. Skuggsjá 1961. Hannes Pétursson: Sögur að norðan. Helgafell 1961. lngimar Erlendur Sigurðsson: Hveitihrauðs- dagar. Smásögur. Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar, Reykjavík 1961. ]akob Thorarensen: Grýttar götur. Smásögur. Helgafell, Reykjavík 1961. Sigurður A. Magnússon: Næturgestir. Skáld- saga. ísafoldarprentsmiðja h.f., Reykjavík 1961. Sigurjón Jónsson: Sandur og sær. Smásögur. Bókaútgáfan Fróði, Reykjavík 1961. Thor Vilhjdlmsson: Svipir dagsins, og nótt. Helgafell, Reykjavík 1961. 1 Ekki veit ég hvort mönnum er almennt ljóst hve sterk hefð hefur verið og er ríkjandi í íslenzkri sagnagerð ekki síður en í ljóðlist. Má vera að svo sé, en miklu minna er þó rætt um hana en Ijóðhefðina. Raunsæishefð getur þessi stefna heitið, enda eru flest eða öll íslenzk sagnaskáld „raunsæismenn" í einum eða öðrum skiln- ingi. Tilraunavilji, nýjungaleit og „form- hylting" hinna yngri höfunda hefur hing- að til að langmestu leyti birzt í ljóðlist- inni, í sagnagerð hafa fáir eða engir leitað nýstárlegri slóða, og raunar aðeins einn höfundur af verulegri stefnufestu og djörfung. Eftirtektarvert er um leið að einmitt þessi höfundur er nú af flestum talinn efnilegastur og líklegastur til stór- ræða liinna yngri höfunda. Samfara þess- ari stílhefð virðist íslenzkri sagnagerð, eða verulegum hluta hennar, markaður undarlega þröngur bás í viðfangsefnavali og hreinlega sögusviði. Ótölulegar eru sveitalífssögur okkar frá fyrri liluta þess- arar aldar eða fyrr, en fáar eða engar sögur fjalla urn íslenzkt sveitalíf í dag. Menn eru enn að skrifa þorpssögur frá fjórða tugi þessarar aldar með ívafi af fyrri tíðar verkalýðsbaráttu, en sjálf höfuð- borgin hefur í fáum sögum hlotið full- gilda listræna túlkun; og sjósókn og sjó- mannalíf verður enn sem fyrr fáum um- talsvert yrkisefni hvað sem líður þætti þessarar atvinnugreinar í þjóðlífinu. Svona mætti lengi rekja dæmin: maður saknar viðleitni til nýjunga í sagnagerðinni og fær ekki skilið hvað veldur þessu þrótt- leysi. Hitt liggur og í augum uppi að þeir höfundar sem seilast til nýstárlegri við- fangsefna eru gjarna líka forgangsmenn í stílviðleitni; það gildir um flesta þá sem gefið hafa út álitlegar skáldsögur hin sið- ari ár. Stórmeistari íslenzkrar sagnalistar á
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.