Andvari - 01.03.1969, Síða 53
ANDVARI
LJÓS ÚR AUSTRI
51
ans er aðeins tímaspursmál, hvort sem er. Vér fæðumst til að deyja og deyjum
til að lifa.“ Sagði hann svo fyrir um, hversu haga skyldi verkum. Fyrst deyddu
menn konur sínar og börn, og síðan hjuggu menn hver annan eftir settum regl-
um, unz aðeins einn stóð eftir. Lét hann síðan fallast á sverð sitt, og þá var
skipun foringjans fullnægt. Nokkrar konur fólu sig í jarðgöngum og lifðu þannig
til að segja söguna. Næsta morgun snemma, er Rómverjar ruddust inn í virkið
með brugnum sverðum, fundu þeir ekkert nema brunarústir og hrúgur af líkum
og svo áðurnefndar konur. Llrðu þeir svo hissa á þessum aðförum, að þeir gáfu
konunum grið. Þetta gerðist í apríl 73 e. Kr. Rómverjar fögnuðu frægum sigri,
og til þess að afrek þeirra skyldu ekki falla í gleymsku, byggðu þeir Sigurboga
Títusar í Rómaborg, sem enn stendur, þótt mjög sé hann nú hrörlegur orðinn.
17. nóvember 1947, næstum 19 öldum síðar, fór fram söguleg skrúðganga
við Títusar bogann í Rómaborg. Þúsundir ítalskra Gyðinga og landar þeirra á
dreifingunni í ýmsum löndum gengu nú sigurgöngu undir boga þessum, sem
reistur hafði verið til að minnast niðurlægingar og áþjánar feðra þeirra. Nú voru
þeir að halda fagnaðarhátíð í tilefni af því, að Sameinuðu þjóðirnar höfðu þá á
þingi ákveðið að endurreisa Ísraelsríki. Rómaveldi var fyrir löngu hrunið til
gmnna með öllurn sínum mætti og dýrð. En Gyðingar sáu roða fyrir nýjum degi.
En sá dagur hefir reynzt róstusamur að þessu. Fornleifafræðin hefir með rann-
sóknum sínum staðfest frásögn Jósefusar. Flér sem víða annars staðar sýndu
merkin verkin.
Jeríkóborg þótti snemma á árum fornleifafræðinnar forvitnilegur staður. Fræg
nöfn í fornum sögum eru tengd þessum stað. Jósúa tók borgina af Kanverjum
með áhlaupi. Antoníus gefur Kleopötru hana sem vináttuvott, að hún mætti
njóta pálmanna og ilmvatnstrjánna, sem breiða þar blöð sín og krónur yfir græna
velli. Ágústus gefur hana síðar Fleródesi, sem nefndur er „hinn mikli" (37 f. Kr.
—4 e. Kr.), þótt ekki væri hann mikill að mannkostum. Hann lét reisa ýmsar stór-
byggingar í Jeríkó, t. d. leikhús eitt mikið. Gerði hann ráð fyrir að láta drepa
alla helztu Gyðinga í borginni og umhverfi hennar á dánardegi sínum, til þess
að borgin yrði ekki með gleðibrag þá daga og hann fengi þó nokkra syrgjendur.
Átti samkvæmt ráðstöfun hans að taka þessa leiðtoga af lífi í leikhúsi þessu. En
ekki varð af framkvæmdum. Heródes dó óðar en varði, og ákvæðum hans var
ekki framfylgt. Símon nokkur, áður þræll konungs, brenndi höll hans til ösku.
Fomleifafræðin telur sig hafa staðfest ýmsa sögulega viðburði á þessum stað og
einnig aðra, sem engar sagnir em til um. Uppgröftur hófst þarna árið 1886.
Djúpt í jörðu komu menn niður á tvöfalda borgarveggi og töldu þá hina sömu,
sem Jósúa braut, er hann tók borgina forðum. Enn var greftri haldið áfram enn
dýpra. Komu þá í Ijós verkfæri úr steini unnin af mönnum, sem þarna höfðu