Andvari

Volume

Andvari - 01.03.1969, Page 162

Andvari - 01.03.1969, Page 162
160 ARNÓR SIGURJÓNSSON ANDVARl lega viS það, hvernig hann notar skáldsögu Jóns Trausta, Leysingu, við lýsingu sína á ÞórSi Guðjohnsen kaupmanni og uppreisn Suður-Þingeyinga gegn verzl- unarveldi hans. Líklega hefur Þorsteinn haldið, að Jón Trausti, sem var fæddur í Norður-Þingeyjarsýslu og nálgaðist fermingaraldur, er uppreisn Suður-Þing- eyinga hófst, hafi lifað sig inn í þá atburði, er á eftir fóru, og síðar minnzt þeirra í sögu sinni. Slíkt er jafnnærri raunveruleikanum og það, sem hann segir um uppruna Snorra í Geitafelli. Jón Trausti var fæddur á miðri Oxarfjarðarheiði og uppeldi hans og sjónarsvið þá í austanverðri Norður-Þingeyjarsýslu. LTm þá veröld vissi ég og jafnaldrar mínir í Suður-Þingeyjarsýslu fram undir fullorðinsár á 20. öld jafnvel minna en um Hornstrandir og Hornafjörð, og það var eflaust gagnkvæmt um vitneskju jafnaldra okkar þar um okkar veröld. Þá og áður skildu okkar veröld og þeirra torfærur eins og Reykjaheiði og Tunguheiði, Jökulsá og Öxarfjörður og raunar Öxarfjarðarheiði líka, því að viðskiptamiðstöðvar austan- verðrar Norður-Þingeyjarsýslu voru austan hennar. Jón Trausti fékk hvorki né hafði, í bernsku eða fullorðinn, tækifæri eða skilyrði til að kynnast Þórði Guð- johnsen eða Suður-Þingeyingum og málum þeirra, nema helzt lítillega Pétri á Gautlöndum alþingismanni, í Reykjavík, eða þeir honum, fyrr en sögur hans tóku að birtast. Eftir að hann náði fullorðins aldri, var hann búsettur á Seyðis- firði og í Reykjavík og á ferðalögum og fjarvistum erlendís. Hann hafði heldur enga slíka úrkosti að kynna sér málefni Þingeyinga af rituðum heimildum, svo sem Þorsteinn Thorarensen hefur nú. Hins vegar gat hann auðveldlega náð í sögusagnir um Þórð Guðjohnsen, sem var meðal allra þjóðkunnustu kaupmanna landsins, og um baráttu Kaupfélags Þingeyinga við hann, en sviplíkri sögu hafði hann dálítið kynnzt á Austurlandi á SeyÖisfjarðarárum sínum, þekkti þar ýmsa, sem voru, þó að með öðrum einkennum væru, rnenn eins og Þórður Guðjohnsen og Þingeyingarnir, sem við hann höfðu glímt, og svo þekkti hann líka fleiri menn, sem stóðu í ýmislegri baráttu hver við annan, og gerði síðan með þessa þekkingu sína að veganesti sögu um baráttu tveggja verzlunarhátta og staðfærði hana í líku umhverfi og Húsavík, er hann kallaÖi Vogabúðir. Þetta gerði hann efalaust til þess að leiða huga lesendanna frá fyrirmyndum, er hann hafði bæði um menn og málefni. Þetta hefur verið venjulegur háttur skálda hér í landi fá- mennisins og kunningsskaparins til að villa fyrir flónunum og gera þeim erfiðara fyrir að nota sögur þeirra til umtals um vissa menn. Ég á bágt með að trúa því, að Þorsteinn Thorarensen hafi látið Jón Trausta villa sig eins og hvert annað óvalið flón. Hins vegar lýsa not þau, sem hann hefur af Leysingu, afstöðu hans til sagn- fræðinnar. Hann rökstyður, að „lítill vafi sé á því“, að Jón Trausti „segi í sinni merkilegu skáldsögu, Leysingu, ævisögu Þórðar Guðjohnsens" með sögu Þor-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.