Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 8

Andvari - 01.01.1978, Page 8
6 HALLDÓR KRISTJÁNSSON ANDVARI stórlæti drengsins að auglýsa með svo átakanlegum hætti fátækt fjöl- skyldunnar, enda var hann aldrei ginnkeyptur fyrir að sækja til annarra, ef undan því rnátti víkjast. Hermann fékk slatta í poka og þótti raunar sem eigi væri rausnarlega úti látið. Er heim kom að Brekkum, var þar kominn fátækur hóndi af næsta bæ þeirra erinda að fá lánaðan hest út á Sauðárkrók til að sækja matarhár, ef lánað fengi handa bjargarlitlu heimili. Þegar Pálína verður þess vís, hvers kyns er, lætur hún orð falla um, að hann þurfi nú líklega ekki út á Sauðárkrók til að sækja mjölmat, því að hér sé hann til, tekur slattann sem Hermann fékk á Hofsstöðum og skiptir til helminga milli sín og bónda. Svona var Pálína. Hún sást ekki fyrir, gat tekið síðasta bitann og rétt að þeim, sem engan átti. „Mér leggst alltaf eitthvað til,“ var hún vön að segja. Og henni varð að trú sinni. Því má bæta hér við, að enda þótt Hermanni þætti forðum sem afi sinn væri ekki stórtækur á mjölið, lærðist honurn síðar að meta Björn á Idofs- stöðum og jafnvel dá hann, sem vel rnátti, því að Björn var um marga hluti hinn mesti nytsemdarmaður, mikill höldur og höfðingi. Adeðan þau hjón Jónas og Pálína voru við bú, var Jónas langdvölum að heiman við smíðar. Var þá Pálína bæði bóndinn og húsfreyjan áður en hörnin uxu úr grasi og hafði til þess alla burði, var hneigð til búsýslu meira en rnaður hennar. Þau voru því eigi samvistum að staðaldri hjónin, rneðan Jónasi entist þrek til að srníða, og mun nokkuð hafa dregið sundur með þeim um sinn og fengið á bæði, einkurn Jónas, sem var óvenju næm- geðja, en dulur að sama skapi. Hann andaðist hálfníræður 1941. Pálína lifði átta árum lengur en maður hennar. 011 komust börn þeirra hjóna til aldurs. Pétur, sem var elztur, var hreppstjóri á Sauðárkróki, en hin fjögur bjuggu öll á Syðri-Brekkum, þrjú ógift, en önnur systirin með rnanni sínum. Blómgaðist það þríhýli vel °g stóð í tugi ára, unz þeir bræður voru allir og mágur þeirra kominn af fótum fram, og var sambýlið ávallt með þeim hætti, að aldrei har skugga á.“ Þannig lýsir Gísli í Eyhildarholti nánasta skylduliði Hermanns Jónas- sonar og kveðst þá mjög styðjast við Björn Sigtryggsson í Framnesi sem heimildarmann. Syðri-Brekkur var talin mikil jörð, en erfið, engjar miklar, en blautar. Otheyskapur gat verið mikill, ef eigi skorti mannafla til, en ákaflega erfið- ur, engjavegur langur og torfarinn fyrir vatnsagasakir. Engjar voru að vísu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.