Andvari - 01.01.1978, Blaðsíða 80
ÁKI GÍSLASON:
Bessastaðaprentsmiðja og blaðaútgáfa
Skúla Thoroddsens
Inngangur.
Það var í byrjun vetrar 1972-73, að
ég tók að mér að skrifa urn Bessastaða-
prentsmiðju og Skúla Thoroddsen, en
Einar Sigurðsson, þá fyrsti bókavörður
í Háskólabókasafni, leiðbeindi mér um
val verkefnis og hafði síðan umsjón með
ritgerðinni. Ekki reyndist unnt að fá
nein skjöl eða gögn úr prentsmiðjunni
sjálfri. Ymsum gögnum Skúla hafði ver-
ið komið fyrir til geymslu í Mennta-
skólanum, en þau fundust ekki, þegar
að var gáð að sögn Jóns Guðnasonar
sagnfræðings, en hann var þá að skrifa
ævisögu Skúla Thoroddsens, og kom
fyrra bindi hennar út 1968. Jón Guðna-
son átti viðtöl við tvo prentara, Þórð
Bjarnason og Sigurð Kjartansson, sem
unnu í prentsmiðjunni hjá Skúla, og
Arna Arnason lækni, sem var um tíma
heimiliskennari hjá Skúla á Bessastöð-
um. Jón leyfði mér afnot af þessum við-
tölum og fleiri gögnum í vörzlu hans,
þar á meðal efnahagsreikningi Skúla
frá 1. janúar árið 1900, mat á prent-
smiðjuhúsinu á Bessastöðum og upp-
skriftum bréfa, sem Skúli skrifaði ýms-
um aðilum. Öll þessi aðstoð við efnis-
söfnun hefur orðið mér að miklu gagni,
og er ég mjög þakklátur fyrir hana.
Við samningu ritgerðarinnar átti ég
nokkur viðtöl. Má þar fyrst nefna Sigurð
Thoroddsen verkfræðing, son Skúla, en
ég átti viðtal við hann í desember 1972
og við tvo bræður hans, Bolla og Sverri,
eftir áramótin. Eg átti viðtal við Jóhann
Gunnar Ólafsson, fyrrum sýslumann í
Isafjarðarsýslu. Einnig átti ég viðtal við
tvo prentara, Þórð Bjarnason, er vann í
prentsmiðjunni á Bessastöðum og Von-
arstræti 12, og Harald Jónsson, er vann
í prentsmiðjunni í Vonarstræti 12.
I samtölum við Sigurð Kjartansson,
Þórð Bjarnason og syni Skúla kom í
ljós, að eftir að Skúli flutti prentsmiðj-
una til Reykjavíkur, var prentsmiðju-
húsið á Bessastöðum selt Boga Þórðar-
syni frá Lágafelli. Bogi lét reisa húsið
við Laugaveginn, þar sem það stendur
enn. Ekki bar mönnum þó saman um,
hvort um væri að ræða hús það, sem nú
ber töluna 30 eða næsta hús við, Lauga-
veg 32. A fundi byggingarnefndar
Reykjavíkurbæjar hinn 26. apríl 1913
sést, að Bogi hefur fengið leyfi til að
reisa hús á lóðinni nr. 32A við Lauga-
veg, sem nú er nr. 32. Við samanburð
kemur í ljós, að máli þessa húss, sem nú
stendur, og hússins, sem Bogi fékk leyfi
fyrir, ber saman, og eru þau hin sömu,
sem tilgreind eru í matinu á prent-