Andvari - 01.01.1978, Blaðsíða 27
andvari
HERMANN JÓNASSON
25
um nýtt ráðuneyti aÖ ræða. Eysteinn Jónsson, sem verið hafði fjármálaráð-
herra, varð viðskiptamálaráðherra í þjóðstjórninni. En hér kom engum ann-
að í hug en Hermann héldi stjórnarforystunni, enda hafði hann manna
mest unnið að því samkomulagi, sem náðist.
Frá kosningunum 19B7 og fram að tíma þjóðstjórnar gerðist tvennt,
sem lengi mun halda nafni Hermanns Jónassonar á lofti.
Annað var setning íþróttalaganna. I apríl 1938 skipaði hann 9 manna
nelnd til að athuga, „hvernig hagkvæmast verði að efla íþróttastarfsemi og
líkamsrækt meðal þjóðarinnar, fyrst og fremst með það sjónarmið fyrir
augum, að áhrif íþrótta til þroska, heilsubótar og hressingar nái til sem
flestra í þessu landi“. Árangurinn varð íþróttalögin, sem samþykkt voru
á þinginu 1939. Með þ eim var stofnaður íþróttasjóður, sund gert skyldu-
namsgrein, opinher stuðningur við íþróttahreyfinguna hundinn skipulagi
og íþróttakennslu markað svið í skólakerfinu. Hermann Jónasson tók svo til
orða í umræðum um málið, að iðkun íþrótta gæti verið stórhættuleg, ef
ekki væri farið með viti og gætni. íþróttalögin áttu að stuðla að því, að
íþróttir væru fastur liður í uppeldinu og þær yrðu stundaðar af viti og
kunnáttu undir leiðsögn menntaðra leiðtoga. Þau munu alltaf verða talin
merkur áfangi i uppeldismálasögu íslendinga.
Arið 1930 kom til tals, að þýzka flugfélagiÖ Lufthansa fengi lendingar-
leyfi á íslandi. Þá var starfandi Flugfélag íslands, sem dr. Alexander Jó-
hannesson var mikill hvatamaður að. Hann var þýzkmenntaður og hand-
genginn þýzkri menningu og hókmenntum. Mun hann hafa átt hlut að
því að glæða áhuga Þjóðverja á þessum samgöngum.
Flugfélag Islands hætti störfum og leystist upp árið 1932, og þá var
samningurinn við Lufthansa niður fallinn. Ríkisstjórn Ásgeirs Ásgeirsson-
ar framlengdi þó samninginn við Lufthansa, þannig að það skyldi ávallt
njóta beztu kjara, en það þýddi, að Lufthansa hefði öll þau réttindi, sem
aðrir kynnu að njóta.
Þegar farið var að líta á flugið sem ferðahátt framtíðarinnar, sáu menn
strax, að Island lá vel við til millilendinga í flugi milli Evrópu og Ameríku.
Því sótti ameríska félagið Pan American um lendingarleyfi hér og fékk
það, en leyfið var bundið því, að framkvæmdir hæfust innan tveggja ára.
FJr þeim varð ekkert, og leyfið féll úr gildi.
Llm mánaðamótin febrúar og marz 1939 var íslenzku ríkisstjórninni
tilkynnt, að Lufthansa vildi nota rétt sinn til lendinga hér. Sendinefnd
kom til að fylgja þeim tilmælum eftir.