Andvari - 01.01.1978, Blaðsíða 96
94
ÁKI GÍSLASON
ANDVARI
heimasamin, en nú er ekkert til af þeim
að sögn Sigurðar Thoroddsens, sonur
Skúla.-3)
Samgöngur við lleykjavík voru frem-
ur erfiðar. Skúli kaus að fara sjóleiðina
til Reykjavíkur, taldi sig of þungan til
að fara á hestbak. Var farið yfir Skerja-
fjörð og lent við Skildinganes og geng-
ið þaðan í bæinn. Það fór eftir sjólagi,
hvar lent var, þegar farið var til Bessa-
staða. Var ýmist farið inn í Tjörnina,
sem þá var opin, eða þá að Skansinum.
Tók ferðin yfir Skerjafjörð um það bil
einn klukkutíma, en ef farið var ríð-
andi til Reykjaví’kur, tók ferðin allt
að einni og hálfri klukkustund.24) Það
hefði mjög bætt aðstöðuna á Bessastöð-
um, ef sími hefði verið lagður þangað.
Það strandaði á því, að Skúli og séra
Jens prófastur gátu ekki komið sér
saman um lagningu hans frá Hafnar-
firði.
6. Bókaútgáfa á Bessastöðum.
Það merkasta, sem prentað var af
bókum á Bessastöðum, voru rímurnar,
en prentun þeirra hafði Skúli hafið á
ísafirði, eins og fyrr getur.
Fyrsta rímurnar, prentaðar á Bessa-
stöðum, voru Rímur af Núma kóngi
Pompílssyni, 1903. Eru þær eftir Sig-
urð Breiðfjörð. Hann orti rímur þessar
á Grænlandi, en þar var hann árin 1831
til 1834. Númarímur voru fyrst prentað-
ar 1835 í Viðey. Eru þær taldar með
því bezta eftir Sigurð Breiðfjörð. A!ls
voru prentaðar 10 rímur, meðan prent-
smiðja Þjóðviljans var á Bessastöðum.
Mest var prentað af rímum árið 1908,
eða 5 rímur. Skúli er talinn kostnaðar-
maður rímnanna nema Númarímna, en
á þeim er enginn kostnaðarmaður
nefndur.
Árið 1902 voru prentaðar tvær merk-
ar bækur: Leikritið Skipið sekkur eftir
lndriða Einarsson og Oddur Sigurðsson
lögmaður eftir Jón Jónsson Aðils. 1
eftirmála getur Jón þess, að hann hafi
eigi getað lesið prófarkir að bókhmi
vegna þess, hve prentsmiðjan sé fiarri.
Hann kvaðst mundu hafa breytt nokk-
uð orðalagi á stöku stað, ef hann hefði
lesið prófarkir. Hann telur þó, að ekki
muni vera margar prentvillur í bókinni.
I bréfi sínu til Þorvalds Thoroddsens,
rituðu 14. desember 1902, minnist Skúli
á bækurnar: „Af prentfélaginu hér er
fátt að frétta, nýprentað leikrit eptir
Indriða (mjög slæmt Reykjavíkurmál á
því) og Oddur lögmaður, 18 arkir, eptir
Jón sagnfræðing, alþýðlega og skemmtil.
rituð bók."25) Skúli var kostnaðarmaður
að útgáfu beggja bókanna. Árið 1905
lét Skúli prenta Mann og konu eftir Jón
Thoroddsen föður sinn, og var það önn-
ur útgáfa.
Einnig hófst á Bessastöðum prentun
riddarasagna, og var Sagan af Hinriki
heilráða prentuð 1908. Hélt prentun
þeirra áfram, eftir að prentsmiðjan
fluttist til Reykjavíkur.
Skúli gaf út Sögusafn Þjóðviljans, en
það voru neðanmálssögur þær, er birt-
ust í Þjóðviljanum, eins og síðar greinir.
Eg fékk prentara til ráðuneytis um
mat á prentgripum frá Bessastöðum.
Erfitt er að meta prentun bókanna, því
að til þess þarf góða þekkingu á prent-
un á þessu tímabili og samanburð við
samtímabækur. í ljós virðist koma, að
fyrstu árin hafi letrið verið lítið slitið
og prentun bezt, en þegar letrið er far-