Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1978, Blaðsíða 70

Andvari - 01.01.1978, Blaðsíða 70
68 HERMANN PÁLSSON ANDVARI afbrot, en á fundinum í Jórvík var hætta á, að málsbætur Egils væru ekki teknar fyllilega til greina. Nú er það býsna algengt í sögum, að tveir and- stæðingar sem deilast við eru báðir sekir að einhverju leyti: „Sjaldan veldur einn, ef tveir deila,“ segir í Hákonar sögu gamla. En þó má það heita regla, að sakleysi annars er auðsærra, enda þolir hann þá áleitni, öfund eða ofsóknir af andstæðingi sínum. Þegar Njáll spáir því fyrir Gunnari á Hlíðarenda, að margir munu öfunda hann, svarar Gunnar: „Við alla vildi ég gott eiga.“ Njáll bætir því þá við, að Gunnar muni jafnan eiga hendur sínar að verja. „Undir því væri þá,“ segir Gunnar, „að ég hefði þá málaefni góð.“ í sögunni gegnir Njáll hlutverki hins réttsýna manns, sem vill að allir séu dæmdir eftir tilgerðum, en Gunnar reynir í lengstu lög að forðast ranglæti, þótt hann hrasi að lokum, er hann svíkur loforð sitt að fara utan. Þegar Steinar í Eglu beitir nautum sínum í land Borgar, verður Þorsteini Egilssyni að orði: „Vænti ég, að mikið skilji hamingju okkar, svo sem málaefni okkar eru ójöfn.“ Ranglæti Steinars eins og ann- arra sem seilast til einhvers sem aðrir eiga endar með ósigri ofbeldis, enda ber það stundum við, að sá sem hefur betri málaefni ber sigur úr býtum, þótt við ofurefli sé að etja. Þegar Júdas Machabeus safnar liði móti innrás frá Sýrlandi, segja menn hans, að það sé engin forsjá að berjast við jafnmik- inn her, en hann svarar þeim: „Látið mig ekki heyra kurr yðar jafnmik- inn. . .. Vér eigum málaefni miklu betri en þeir, því að vér verjum líf vort og lög.“23 Lesendum kemur það engan veginn á óvart, að viðureigninni lýkur með sigri Gyðinga. í Hávarðar sögu kveður Steinþór svo að orði, eftir að Hávarður karl hefur ráðið niðurlögum ójafnaðarmannsins Þorbjarnar: „Hefir þetta meir gengið eftir málaefnum en líkindum.“ Og í sömu sögu lætur Gestur Oddleifsson svofelld orð falla um víg ofbeldismannsins Ljóts, bróður Þorbjarnar: „Gekk það eftir málaefnum, að tvö börn skyldu drepa þvílíkan kappa sem Ljótur var.“ Hér eins og víðar í sögum lýtur vald fyrir réttlæti. Þannig auðnaðist Ámunda blinda í Njáls sögu að vega ójafnaðar- manninn Lýting, föðurbana sinn, sem vildi ekki unna honum bóta, og þykir Njáli það merkilegt tákn: „Ekki má saka þig um slíkt .. . því að slíkt er mjög á kveðið, en viðvörunarvert, ef slíkir atburðir verða, að stinga eigi af stokki við þá, er svo nær standa.“ Að nestlokum má minna lesendur enn á það, að í íslendingasögum eru lög og réttlæti sitt hvað, enda er næsta hæpið að meta slíkar bókmenntir sem mælikvarða á réttarreglur. Glöggir lesendur sagnanna á tuttugustu öld, ekki síður en forverar þeirra á hinni þrettándu, hljóta að taka afstöðu til mannvíga og annarra ofbeldisverka, sem í þeim eru framin. En forn- lög okkar eru vafasamt leiðarhnoða um siðferði manna í þessum bók- menntum; betri skilning á því sem gerist í sögunum öðlumst við með því að hlíta lærðum hugmyndum um réttlæti og aðra „höfuðkosti“ fyrr á öldum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.