Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 21

Andvari - 01.01.1978, Page 21
andvari HERMANN JÓNASSON 19 un á kjötpundi þýddi 10 aura hækkun á tímakaupi. Það mun ekki fjarri lagi að segja, að þessi málefnasamningur hafi táknað þáttaskil í sögunni og þessi grein Tryggva hafi boðað þau. Ekki var fullur einhugur um þetta væntanlega samstarf í þingflokki Framsóknarmanna. Þar gætti þeirrar skoðunar, að bændaflokkur ætti sam- Stöðu með atvinnurekendum fremur en launþegum, og nokkurrar tregðu við almennar kauphækkanir, vegna þess að þær myndu torvelda bændum að fá vinnufólk. Kom svo, að tveir af þingmönnum flokksins, Húnvetning- arnir Hannes Jónsson og Jón í Stóradal, neituðu að styðja þessa samstjórn, nerna Asgeir Ásgeirsson yrði forsætisráðherra. Þegar til kom, neitaði Ásgeir að taka að sér myndun slíkrar stjórnar, en lagði til, að Sigurði Kristinssyni yrði falin stjórnarmyndun. Hann tók að sér að gera tilraun, en þeir Hannes og Jón neituðu enn sem fyrr að styðja slíka stjórn. Var þá útséð um það stjórnarsamstarf í hili. Þá vildu þeir, sem mestan áhuga höfðu á slíku sam- starfi, að þeir Hannes og Jón yrðu reknir úr flokknum. Það var samþykkt gegn andmælum Tryggva Þórhallssonar, sem gekk af fundi ásamt þeirn strax og brottreksturinn var samþykktur. Þar með gekk Tryggvi úr Fram- sóknarflokknum og stofnaÖi Bændaflokkinn ásanrt þeim Hannesi og Jóni og sr. Þorsteini Briem ráðherra, sem ekki var alþingismaður. Fjórði þingmað- ur Framsóknarflokksins, sem gekk í Bændaflokkinn, var Halldór Stefáns- son, en sagt var, að sumir aðrir væru nokkuð á báðum átturn fyrst í stað. Stjórnarskrárbreytingin var samþykkt aftur 1934 og samkvæmt því efnt til alþingiskosninga eftir hinni nýju stjórnarskrá sumariÖ 1934. Þótti Fram- sóknarmönnum fyrir miklu að berjast, þar sem var málefnasamningur sá, sem þeir höfðu gert við Alþýðuflokkinn. Eitt af því sem talið var miklu skipta var framboÖið í Strandasýslu móti Tryggva Þórhallssyni. Tryggvi atti glæsilegan feril að haki. Hann var forsætisráðherra ríkisstjórnar, sem stóð fyrir margháttuðum framkvæmdum. Hann hafði um 15 ára skeið verið ötulasti og snjallasti talsmaður bænda og landbúnaÖar, en þá eins og oftar hafði landbúnaðurinn verið vanmetinn. Strandasýsla mátti heita hreint sveitakjördæmi, og þar hlutu menn almennt að meta það, sem Tryggvi hafði verið íslenzkri bændastétt, auk þess sem 10 ára þingmennska hafði aflað honum vinsælda. Mörgum þótti því meÖ ólíkindumj að Fram- sóknarflokkurinn næði þar þingsæti. Það sýnir álit Hermanns í flokknum, að hann var valinn til framboðs 1 Strandasýslu, þar sem einna mest þótti við liggja og sigurhorfur harla vafasamar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.