Andvari - 01.01.1978, Blaðsíða 105
andvari bessastaðaprentsmiðja og blaðaútgáfa skúla thoroddsens
103
senda skyldi til Danmerkur til samninga
við Dani um samband íslands og Dan-
rnerkur. Var því Bjarni Jónsson fenginn
til þess að annast ritstjórn Þjóðvilj-
tins, meðan Skúli var erlendis. Er Bjarni
Jónsson ritstjóri og ábyrgðarmaður frá
og með 9. tölublaðinu. Samninganefnd-
in fór frá Reykjavík 16. febrúar. Sjálfur
for Bjarni Jónsson til Kaupmannahafn-
ar 18. marz til að fylgjast þar með
framvindu mála. Kom hann heim seinni
hluta maí. Skúla dvaldist lengur í Dan-
mörku en öðrum nefndarmönnum. Var
það vegna veikinda. Kom hann heim
23. júní. Síðan verður Skúli aftur rit-
stjóri með 30. tölublaðinu. En er 33.
tölublað kemur út, er Sigurður Lýðsson
orðinn ritstjóri. f næsta tölublaði á ur:d-
an er sú skýring gefin, að Skúli fari til
Isafjarðar og verði þar nokkurn tíma.
Hafði Sigurður síðan ritstjórnina með
höndum, þar til Skúli tekur aftur við
með 50.-51. tölublaðinu, hinn 14. nóv.
En á meðan Sigurður var ritstjóri, var
blaðið flutt frá Bessastöðum til Reykja-
víkur. Síðasta blaðið, sem var prentað
á Besastöðum, var 44. tbl. 22. árg., 17.
september. Kom fyrsta tölublaðið í
Reykjavík út hinn 13. október, en það
var 45.-46. tbl. Er flutninganna getið
í síðasta tölublaðinu á Bessastöðum.
Segir þar, að vegna væntanlegra flutn-
mga hafi útkomu síðustu tölublaðanna
verið flýtt. Eru lesendur beðnir afsök-
unar á því, að lengra muni líða, þar til
næsta tölublað komi út. Jafnframt er
sagt, að tölublöðin komi örar út, þegar
til Reykjavíkur er komið, þannig að
lesendur blaðsins fái þann tölublaða-
fjölda, sem þeim var lofað, er þeir gerð-
ust^ áskrifendur.
í 3.-4. tbl. 23. árg. 1909 er sagt frá
því, að hinn 28. janúar hafi Skúli farið
til Vestfjarða til að halda þingmálafund
með kjósendum sínum. Einnig er þess
getið 9. júlí sama ár, að ritstjórinn sé
fjarverandi og muni dveljast um tíma
á Vestfjörðum. Þar segir og, að Sigurð-
ur Lýðsson sjái um blaðið á meðan. Sig-
urður hefur oftar ritstýrt blaðinu í for-
föllum Skúla, þótt þess sé ekki sérstak-
lega getið.8) Það var hægt um vik, því
Sigurður bjó í Vonarstræti 12, og þar
er hann skráður í manntalinu í Reykja-
vík 1908.
Á seinustu árum Þjóðviljans gekk út-
gáfan fremur skrykkjótt. Veikindi Skúla
ollu oft töfum á útgáfu blaðsins. Komu
þá oft út tvínúmeruð eintök. í 8.-9. tbl.
27. árg. Þjóðviljans árið 1913 er þess
getið, að frá síðustu áramótum hafi
blaðið ekki komið eins reglulega út og
til sé ætlazt vegna sérstakra atvika. Eru
Jesendur blaðsins síðan beðnir að afsaka
þessa erfiðleika. Er þeim lofað, að eftir-
leiðis komi blaðið örar út. Árið 1914
gekk útgáfa Þjóðviljans einnig erfiðlega.
I 5. tbl. 28. árg. Þjóðviljans, 31. janúar
árið 1914, birtist eftirfarandi tilkynning:
„Yfirprentarinn, hr. Haraldur Gunn-
arsson, er stýrir prentsmiðju blaðs vors,
hefur nú þegar legið rúmfastur í nær
hálfan mánuð, og ofan á þau veikindin
bættist síðan það óhappið, að prentnem-
inn, sem vér höfum, hr. Magnús Jóns-
son, lagðist og nokkru síðar í „hettu-
sóttinni", sem tínt hefur upp unga fólk-
ið hér í höfuðstaðnum í vetur og enn er
eigi um garð gengin.
Þetta er það, sem því hefur valdið, að
hlé hefur orðið á útkomu blaðs vors
um tíma, og eru lesendurnir því beðn-
ir að virða það á betri veg.“
1.-2. tölublað Þjóðviljans hafði kom-
ið út 12. janúar og 3.-4. tölublað 31.
janúar og ásamt því hið fimmta, er