Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1978, Side 105

Andvari - 01.01.1978, Side 105
andvari bessastaðaprentsmiðja og blaðaútgáfa skúla thoroddsens 103 senda skyldi til Danmerkur til samninga við Dani um samband íslands og Dan- rnerkur. Var því Bjarni Jónsson fenginn til þess að annast ritstjórn Þjóðvilj- tins, meðan Skúli var erlendis. Er Bjarni Jónsson ritstjóri og ábyrgðarmaður frá og með 9. tölublaðinu. Samninganefnd- in fór frá Reykjavík 16. febrúar. Sjálfur for Bjarni Jónsson til Kaupmannahafn- ar 18. marz til að fylgjast þar með framvindu mála. Kom hann heim seinni hluta maí. Skúla dvaldist lengur í Dan- mörku en öðrum nefndarmönnum. Var það vegna veikinda. Kom hann heim 23. júní. Síðan verður Skúli aftur rit- stjóri með 30. tölublaðinu. En er 33. tölublað kemur út, er Sigurður Lýðsson orðinn ritstjóri. f næsta tölublaði á ur:d- an er sú skýring gefin, að Skúli fari til Isafjarðar og verði þar nokkurn tíma. Hafði Sigurður síðan ritstjórnina með höndum, þar til Skúli tekur aftur við með 50.-51. tölublaðinu, hinn 14. nóv. En á meðan Sigurður var ritstjóri, var blaðið flutt frá Bessastöðum til Reykja- víkur. Síðasta blaðið, sem var prentað á Besastöðum, var 44. tbl. 22. árg., 17. september. Kom fyrsta tölublaðið í Reykjavík út hinn 13. október, en það var 45.-46. tbl. Er flutninganna getið í síðasta tölublaðinu á Bessastöðum. Segir þar, að vegna væntanlegra flutn- mga hafi útkomu síðustu tölublaðanna verið flýtt. Eru lesendur beðnir afsök- unar á því, að lengra muni líða, þar til næsta tölublað komi út. Jafnframt er sagt, að tölublöðin komi örar út, þegar til Reykjavíkur er komið, þannig að lesendur blaðsins fái þann tölublaða- fjölda, sem þeim var lofað, er þeir gerð- ust^ áskrifendur. í 3.-4. tbl. 23. árg. 1909 er sagt frá því, að hinn 28. janúar hafi Skúli farið til Vestfjarða til að halda þingmálafund með kjósendum sínum. Einnig er þess getið 9. júlí sama ár, að ritstjórinn sé fjarverandi og muni dveljast um tíma á Vestfjörðum. Þar segir og, að Sigurð- ur Lýðsson sjái um blaðið á meðan. Sig- urður hefur oftar ritstýrt blaðinu í for- föllum Skúla, þótt þess sé ekki sérstak- lega getið.8) Það var hægt um vik, því Sigurður bjó í Vonarstræti 12, og þar er hann skráður í manntalinu í Reykja- vík 1908. Á seinustu árum Þjóðviljans gekk út- gáfan fremur skrykkjótt. Veikindi Skúla ollu oft töfum á útgáfu blaðsins. Komu þá oft út tvínúmeruð eintök. í 8.-9. tbl. 27. árg. Þjóðviljans árið 1913 er þess getið, að frá síðustu áramótum hafi blaðið ekki komið eins reglulega út og til sé ætlazt vegna sérstakra atvika. Eru Jesendur blaðsins síðan beðnir að afsaka þessa erfiðleika. Er þeim lofað, að eftir- leiðis komi blaðið örar út. Árið 1914 gekk útgáfa Þjóðviljans einnig erfiðlega. I 5. tbl. 28. árg. Þjóðviljans, 31. janúar árið 1914, birtist eftirfarandi tilkynning: „Yfirprentarinn, hr. Haraldur Gunn- arsson, er stýrir prentsmiðju blaðs vors, hefur nú þegar legið rúmfastur í nær hálfan mánuð, og ofan á þau veikindin bættist síðan það óhappið, að prentnem- inn, sem vér höfum, hr. Magnús Jóns- son, lagðist og nokkru síðar í „hettu- sóttinni", sem tínt hefur upp unga fólk- ið hér í höfuðstaðnum í vetur og enn er eigi um garð gengin. Þetta er það, sem því hefur valdið, að hlé hefur orðið á útkomu blaðs vors um tíma, og eru lesendurnir því beðn- ir að virða það á betri veg.“ 1.-2. tölublað Þjóðviljans hafði kom- ið út 12. janúar og 3.-4. tölublað 31. janúar og ásamt því hið fimmta, er
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.