Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 9

Andvari - 01.01.1978, Page 9
andvari HERMANN JÓNASSON 7 sléttar, er á þær var komið, grasgefnar flæðiengjar, en votlendar og meg- inhluti þeirra vestan við höfuðkvísl Héraðsvatna eystri. Tvíbýli var á Brekk- um á uppvaxtarárum Hermanns og hafði svo lengi verið. Voru báðir bænd- ur fátækir leiguliðar, búin lítil, börnin mörg og stundum þröngt í búi. Tún var í meðallagi stórt, en þýft nokkuð svo, liggur neðst í Brekknaás, hallar mót vestri niður að eylendi því hinu mikla, er verður milli Brekknaáss að austan og Hegraness að vestan. Um þessa sléttu kvíslast Héraðsvötn eystri. Er þar sem hafsjó yfir að líta í vorflóðum og vetrar, því að land er lágt og flatt. Hefur það löngum verið góð skemmtun unglingum að sullast þar á pramma á vorin og renna sér á skautum á vetrum. Voru þeir Brekkna- bræður allir ágætir skautamenn. Gísli Magnússon segir svo um þá bræður: „Allir voru þeir bræður vel að manni. Björn hygg ég þó verið hafa þeirra burðamestan. Munu fáir hafa vitað afl hans aðrir en Hermann. Sjálfum óx Hermanni afl svo ört, að skjótt bar hann af jafnöldrum sínum. Hann lét 200 pund til klakks 17 ára gamall. Á æskuárum var hann ein- stakur ærslabelgur. Aflraunir og áflog A'oru hans líf og yndi. Þeir þreyttu aflraunir öllum stundum er máttu, bræðurnir, og tókust á úti og inni, varð þá sitthvað undan að láta í baðstofunni gömlu á Brekkum. Fékkst móðir þeirra eigi um og ávítaði þá ekki fyrir ærslin, en bað þá stundum að „hlífa rokknum". Upp úr fermingu fór Hermann að takast á við Björn bróður sinn, sem var sex árum eldri. Fyrstu árin hafði hann ekki roð við Birni. En smám saman óx honum svo megin, að honum tókst að leggja Björn. Naut hann þar hörku sinnar og keppni. Hermann hefur sagt svo sjálfur, að þá hafi hann komizt í einna krappastan, er hann þreytti eitt sinn kappslátt við Björn bróður sinn og aldrei þreyttari verið að loknu dagsverki. LTngir hófu þeir bræður að leggja stund á skotfimi, einkum Björn og Hermann, og urðu afbragðs skyttur. Á Brekkum var fuglalíf mikið og mergð gæsa, silungsveiði nokkur í Héraðsvötnum. Osjaldan færðu þeir fugl og fisk í fátækt bú og urðu nokkur drýgindi að. Eigi létu þeir vosbúð og vatnaslark fyrir standa. Var ekki um fengizt af móður þeirra og systr- um, þótt mjög mæddi á þeim um þvotta og önnur þjónustubrögð. En þótt Hermann væri jafnöldrum sínum fremri að líkamshreysti, var hann eigi síður gæddur óbilandi viljastyrk — að ná settu marki. Og markið bar hátt. Honum nægði eigi að nema staðar í miðjum hlíðum. Tindurinn var takmarkið."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.