Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 13

Andvari - 01.01.1978, Page 13
andvari HERMANN JÓNASSON 11 Þetta gerði okkur auðvelt að blanda geSi á talsvert þjóðlegan og menn- ingarlegan hátt, að okkur sjálfum fannst a. m. k. Margri stund eyddum við til samfunda upp á þessar spýtur." Þessi ummæli Karls Kristjánssonar eru tekin hér upp, af því að þau eru héimild um viðhorf og reynslu þessara skólasveina á mótunarskeiði, um leið og þau eru lýsing á Hermanni Jónassyni sem glímumanni og kepp- anda. Þeir Karl voru tvo vetur saman í skóla, báðir nýsveinar haustið 1914, en Karl fór í annan bekk og lauk prófi frá skólanum vorið 1916. Hernrann Jónasson var i fjórða bekk Menntaskólans í Reykjavík vet- urinn 1917—1918. Hann gekk í GlímufélagiS Ármann og æfði glímu. Veturinn 1919—1920 las hann 5. og 6. bekk og hafði því takmarkaðan tíma til æfinga. Samt tók hann þátt í skjaldarglímu Ármanns þann vetur. Veturinn eftir hóf hann lögfræðinám og æfði glímu kappsamlega. Auk glim- unnar sjálfrar æfði hann leikfimi og annað, sem studdi að þolgæði. I skjaldarglímunni þann vetur vann Tryggvi Gunnarsson skjöldinn eins og fyrr, en Hermann veitti honum harða keppni og hlaut bikarinn sem sá vann sem bezt glímdi að mati dómnefndar. Svo kom Islandsgliman 1921. Þar felldi Hermann alla keppinauta sína og varð glímukóngur. Kristján konungur X. heimsótti ísland sumarið 1921. Glímusýning á Þingvöllum var eitt af því, sem þá var haft til hátíSabrigða og skemmtun- ar. Konungur bafði tilkynnt, að hann myndi gefa bezta glímumanninum verðlaunabikar. Formaður Iþróttasambandsins sagði áður en glíman hófst, ,,að úrslitadómi réði vinningafjöldi, þó því aðeins að glíman væri lýta- laus." Svo fór, að Ilermann Jónasson felldi alla keppinauta sína, en konungs- bikarinn var afhentur GuSmundi Kr. GuSmundssyni samkvæmt því, að dómnefnd taldi hann hafa sýnt fegursta glímu. En nokkru síðar afhenti stjórn ISI Hermanni silfurbikar, sem á var letrað: „Sigurvegari í Konungs- glímunni á Þingvöllum 1921.“ Nokkrar blaðadeilur urðu vegna þessarar Konungsglímu og verðlaun- anna. Þótti úrskurður dómnefndar vafasanmr og því fremur, að stjórn Iþróttasambandsins veitti Hermanni verðlaun sem sigurvegara. En Jretta var i síðasta sinn, sem Hermann Jónasson keppti opinberlega í glímu. Og á því hafa menn ýmsar skýringar. Sjálfur hefur Hermann sagt opinberlega í blaðaviðtali í afmælisriti
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.