Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1978, Page 57

Andvari - 01.01.1978, Page 57
andvari UM HETJUSKAP í HÓMERSKVIÐUM OG ÍSLENZKUM FORNSÖGUM 55 þíns og annast hannyrðir þínar, vefinn og snælduna, og seg þjónustu- meyjum þínum að fara til verka; en allir karlmenn, þeir er í Ilíonsborg eru, og einkum ég, eiga að skipta sér af ófriðnum.“ Að því mæltu tók hinn frægi Hektor upp hinn taglskúfaða hjálm, en hans kæra kona gekk heim, leit oft aftur og felldi margt þrungið tár. Þennan kafla má bera saman við frásögn af skilnaði Ólafs og Sigríðar í Hávarðar sögu Isfirðings (I.F. VI, 304—05): Óláfr snýr þá til bæjarins; var þat snimma morguns. Hann barði á dyrn- ar. Þá gekk Sigríðr til duranna ok fagnaði vel Ólafi. Hann tók vel kveðju hennar. Ok sem þau hofðu stund skrafat, þá mælti Sigríðr: „Skip ferr þar handan yfir fjorðinn, ok sé ek gQrla, at þar er ÞorbjQrn Þjóðreksson ok Vakr, frændi hans; ek sé, at vápn þeira liggja í stafni fram. Þar er ok Gunnlogi, sverðit Þorbjarnar, ok er annathvárt, at hann hefir illt gQrt, eða ætlar hann, ok vil ek, Óláfr, at þú finnir hann Þorbjprn; hefir lengi fátt verit með ykkr, en þó ætla ek, at nú hafi ekki um batnat, er þér virðuð mér féit á Laugabóli.“ Óláfr svarar: „Ekki óttumk ek ÞorbjQrn, á meðan ek hefi ekki gQrt til saka við hann; mun ek ok skammt renna fyrir honum einum.“ Hon svarar: „Þetta er hraustliga mælt, at þú átján vetra myndir eigi undan leita þeim manni, er jafnvígr er hverjum manni; hann hefir ok þat sverð, er hvergi nemr í hpggi stað. Ætla ek ok þat., ef þeir vilja þik finna, sem mér segir hugr um at sé, at Vakr, illmennit, muni eigi sitja hjá, ef þit berizt.“ Óláfr svarar: „Ek á ekki orendi við ÞorbjQrn; mun ek ekki finna þá, en ef vér finnumsk, skaltu npkkut hraustligt eiga til at spyrja, ef þess þarf.“ Sigríðr svarar ok kvezk ekki mundu at spyrja. Ólafr spratt upp skjótt ok bað hana vel lifa, en hon bað hann vel fara. í ljós kemur eftir fall Ólafs, hvað Sigríður átti við, þegar þau kvöddust, því að síðar í sögunni (307. bls.) segir, að hún hafi ekki fundizt eftir að hún gekk í brott með Ólafi. Annar sambærilegur kafli er miklu einfaldari frásögn Droplaugarsona sögu af skilnaði Helga Droplaugarsonar og hjalskonu hans (I.F. XI, 157): Fara þeir þá um heiði austr ok koma til Þorkels á Torfastaði. Dóttir hans var Tófa, er kQlluð var Hlíðarsól. Hon var hjalskona Helga Droplaug- arsonar. Þar váru þeir um nótt, ok tpluðu þau Helgi margt ok Tófa. Sagði henni svá hugr um sem hann mundi eigi aptr koma ór þessi fQr. Hon gekk á gQtu með þeim ok grét : mjok. Helgi spretti af sér belti góðu, og þar á knífr búinn, ok gaf henni. Síðan skilðusk þau. Þegar vér skoðum þessi dæmi hér að framan, er ljóst, að mismunur þeirra er forvitnilegri en það, sem sameiginlegt er með þeim. I köflunum úr Hómerskviðum eru tilfinningarnar látnar uppi, en í íslenzkum fornsögum er þeim haldið vendilega niðri. Hómer kveður öll skilningarvit til vitnis, sagnahöfundar leggja sig í líma að leyna því, sem í brjósti býr. Andstæðurn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.